Almennar upplýsingar
Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Landsmót UMFÍ 50+ var fyrst haldið á Hvammstanga árið 2011 og hefur verið haldið árlega síðan. Að vísu var mótinu frestað 2020 og 2021 vegna Covid en var haldið í Borgarnesi árið 2022. Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum.
Mótsgjald
Þátttökugjald er aðeins 5.500 kr. og innifalið í því er þátttaka í öllum keppnisgreinum mótsins.
Mótsstaður
Mótið verður haldið í Stykkishólmi dagana 23. – 25. júní 2023 í samstarfi við HSH, Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu og Sveitarfélagið Stykkishólm. Stykkishólmur er frábær staður að heimsækja enda vinsæll með eindæmum. Íbúar er um 1.300 talsins og eru sjávarútvegur og ferðaþjónusta stærstu atvinnugreinarnar á svæðinu. Í Stykkishólmi eru ljómandi góðar verslanir og veitingastaðir og þjónusta öll til fyrirmyndar.
Mótssvæði
Mótið fer fram á tiltölulega litlu svæði sem er í hjarta bæjarins. Íþróttavöllur, golfvöllur, sundlaug og íþróttahús er allt í göngufæri. Íþróttamannvirkin eru í góðu ástandi og bjóða upp á ýmsa skemmtilega möguleika.
Íþróttir
Unnið er að því að ákveða keppnisgreinar á mótinu. Eins og staðan er í dag þá er ljóst að boðið verði upp á fjölbreytta dagskrá. Hefðbundin keppni verður í flestum greinum en einnig verða greinar sem ekki verður keppt í en allir geta tekið þátt í og prófað. Þær greinar sem við erum að vinna með núna eru: Badminton, boccia, borðtennis, bridds, frisbígolf, frjálsar íþróttir, golf, götuhlaup, hjólreiðar, körfubolti, pílukast, pútt, ringó, skák, stígvélakast og sund.
Afþreying
Eitt og annað verður til gamans gert enda eitt það mikilvægasta á mótinu að hafa gaman. Óvenju mikið verður um afþreyingu að þessu sinni en Danskir dagar verða haldnir í Stykkishólmi á sama tíma. Það verður því gríðarlega mikið í boði alla helgina og allir eiga að finna eitthvað við sitt hæfi.
Dagskrá
Unnið er að dagskrá mótsins og verður hún birt um leið og hún liggur endanlega fyrir. Það er þó ljóst að mótið hefst á föstudagsmorgni og verður keppt fram eftir degi. Laugardagurin er stóri keppnisdagurinn en þá verða fjölmargar greinar í gangi og þessu lýkur síðan um miðjan sunnudag.
Tjaldsvæði
Tjaldsvæði er afskaplega vel staðsett, við golfvöllinn og þaðan er göngufæri í flestar keppnisgreinar.
Stjórnstöð
Mótsstjórn verður með sína aðstöðu í íþróttahúsinu. Þar verður tekið á móti mótsgestum og þar fá þeir sín gögn afhent. Við stöndum vaktina í mótsstjórninni og verðum þar til að svara spurningum en einhverjar vakna.
Nánari upplýsingar
Unnið er að nánari upplýsingum og samsetningu á dagskrá. Framkvæmdastjóri mótsins er Ómar Bragi Stefánsson. Netfang omar@umfi.is Sími 8981095