Fara á efnissvæði

UMFÍ

Vafrakökustefna

Vefsíða UMFÍ notar vafrakökur (e.cookies) til þess að tryggja sem bestu upplifun á síðunni fyrir notendur. Stefnunni er ætlað að upplýsa notendur um það hvað vafrakaka er, hvernig félagið notar vafrakökur og hvernig notendur geta stjórnað notkun sinni á þeim.

Vafrakökur

Vafrakökur eru  litlar textaskrár sem vefsvæðið getur sett inn á tölvuna þína eða önnur snjalltæki þegar vefsíða UMFÍ er heimsótt. Vafrakökur gera vefsvæðum kleift að þekkja tölvur notenda og því er vafrakaka eins konar stafrænt merki sem man hvar þú hefur verið á netinu.

Gerður er greinarmunur á setukökum og viðvarandi vafrakökum. Setukökur gera vefsvæðinu kleift að tengjast aðgerðum notanda á meðan hann er á vefsvæðinu. Setukökur eyðast almennt þegar notandi fer af vefsvæðinu og eru því ekki vistaðar til lengri tíma. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notanda og muna þannig val eða aðgerðir notenda á vefsvæðinu. UMFÍ notast bæði við setukökur og viðvarandi vafrakökur.

Þá eru vafrakökur ýmist fyrstu aðila kökur eða þriðju aðila kökur. Það ræðst af léni vefsvæðisins sem gerir vafrakökuna hvort hún telst fyrsta- eða þriðja aðila vafrakaka. Fyrstu aðila vafrakökur eru í grundvallaratriðum vafrakökur sem verða til á því vefsvæði sem notandi heimsækir. Þriðju aðila vafrakökur eru þær vafrakökur sem verða til á öðru léni en því sem notandi heimsækir.

Frekari upplýsingar um vafrakökur má finna á eftirfarandi vefsíðu um vafrakökur: www.allaboutcookies.org.

Vafrakökur sem UMFÍ notar á vefsíðu sinni

UMFÍ notast við nokkrar tegundir af vafrakökum á vefsíðunni sinni, www.umfi.is, og eru kökurnar notaðar í eftirfarandi tilgangi:

  • Nauðsynlegar kökur (e. necessary): Nauðsynlegar vefkökur virkja eiginleika á vefsvæðinu sem verða að vera til staðar svo hægt sé að nota það eins og til er ætlast.
  • Tölfræðikökur (e. statistics): Tölfræðikökur eru notaðar við rekstur vefsíðunnar og innihalda tölfræðiupplýsingar um hversu oft vefsíðan er heimsótt og aðra vefgreiningu, án persónugreiningar.
  • Markaðskökur (e. marketing): Markaðskökur eru notaðar til þess að fylgjast með heimsóknum á vefsíðuna og fylgjast með leitarvenjum og leitarvirkni notenda.

Þær persónuupplýsingar sem safnast með kökunum eru m.a. upplýsingar um IP tölu, staðsetningu, aðgerðir á vefsíðu og búnað notanda.

UMFÍ notast m.a. við kökur frá Google Analytics, Mapbox, Youtube og Siteimprove og í gegnum þær kökur hafa Google, Mapbox, Youtube og Siteimprove aðgang að þeim upplýsingum sem kökurnar safna, þ.á m. IP tölum notenda. Þessir aðilar kunna þannig að koma fram sem vinnsluaðilar fyrir hönd UMFÍ í skilningi persónuverndarlaga.

Á vefsvæði UMFÍ eru einnig þriðja aðila kökur.

Hvernig er hægt að slökkva á kökum?

Vinnsla þeirra persónuupplýsinga sem safnast með nauðsynlegum kökum er byggð á lögmætum hagsmunum UMFÍ, endar virkja þær kökur eiginleika sem verða að vera til staðar til að hægt sé að nota vefsvæðið eins og til er ætlast.

Vinnsla þeirra persónuupplýsinga sem safnast með notkun á öðrum vafrakökum er hins vegar byggð á samþykki notenda. Þegar einstaklingur heimsækir vefsvæðið í fyrsta skipti birtist borði þar sem viðkomandi er beðin/nn um að samþykkja þær vafrakökur sem UMFÍ notast við.

Notandi getur hvenær sem er afturkallað þetta samþykki með því að loka á kökur á vefsíðunni eða eytt þeim úr sínum vafra. Það kann hins vegar að hamla virkni síðunnar að einhverju leyti.

Það er mismunandi milli netvafra hvernig breyta á vefkökum, en nánari upplýsingar má nálgast á eftirfarandi tenglum:

Notir þú aðra vafra ættir þú að geta fundið upplýsingar um stillingar á vafrakökum á vefsíðu vafrans. Þá er hægt að slökkva á notkun á vafrakökum Google Analytics með því að ýta á þennan tengil:
https://tools.google.com/dlpage/gaoptout.

Varðveislutími vefkaka

Flestar af vafrakökum þeim sem UMFÍ notar eru setukökur en þær eyðast þegar notandi fer af vefsvæðinu. Aðrar kökur kunna að vera varðveittar í allt að 2 ár. 

Nánari upplýsingar

UMFÍ getur frá einum tíma til annars breytt þessari stefnu í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum eða vegna breytinga á því hvernig félagið notast við vefkökur.