Fara á efnissvæði
20. júní 2017

Enn hægt að skrá sig í einstaklingsgreinar í Hveragerði

Enn er opið fyrir skráningar í einstaklingsgreinar og valdar liðagreinar á Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fer í Hveragerði um næstu helgi, dagana 23.-25. júní. Almennt er þó búið að loka fyrir skráningu flestra greina fyrir hópa.

Enn er hægt að skrá sig til þátttöku í eftirtöldum greinum:

- Frjálsar: Hægt að skrá þátttöku til hádegis á miðvikudag 21. júní.
- Bridds og strandblak: Opið fyrir skráningu til miðnættis fimmtudaginn 22. júní.
- Sund: Hægt að skrá sig til klukkan 16:00 föstudaginn 23. júní.

Aðrar greinar sem eru opnar:


- Skák, badminton, pönnukökubakstur, jurtagreining, fuglagreining, þrekmót, utanvegahlaup, þríþraut og stígvélakast. - Opið er fyrir skráningar til miðnættis föstudaginn 23. júní.

Þú greiðir aðeins eitt gjald og getur skráð þig til þátttöku í eins mörgum greinum og þú vilt keppa í.

Ekki missa af góðu móti.

Skráðu þig hér.