Fara á efnissvæði
23. mars 2024

Kvittað upp á Unglingalandsmót

„Framundan eru mörg handtök en með samvinnu öflugs hóps fólks frá UMSB, Borgarbyggð og UMFÍ bind ég miklar vonir við að uppskeran verði eins og sáð verður til og fjölskyldur eiga enn eina mögnuðu samveruna á íþróttahátíð í Borgarnesi,“ sagði Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, þegar hann undirritaði í Borgarnesi samning á milli Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB), Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) og Borgarbyggðar í vikunni.

Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Borgarnesi um verslunarmannahelgina 2024.

Jóhann bætti vð að það sé alltaf gaman að koma og skrifa undir samning um framkvæmd Unglingalandsmóts UMFÍ. Mótið skipi stóran sess í huga ungmennafélagshreyfingarinnar þar sem forvarnir og gleði eru í forgrunni. 

Undir samninginn skrifuðu auk Jóhann þau Guðrún Hildur Þórðardóttir, sambandsstjóri UMSB, og Stefán Broddi Guðjónsson, sveitarstjóri Borgarbyggðar. 

Haft er eftir Stefáni Brodda á heimasíðu UMSB að Borgfirðinga hlakki til að taka á móti íþróttafólki og gestum á Unglingalandsmót 2024.

„Það er löng hefð fyrir því að íþróttafólk skíni skært í sumarsólinn í Borgarfirðinum, sagði Stefán Broddi og bætti við að framundan sé heilmikil undirbúningsvinna sem unnin verði í góðu samstarfi UMSB, UMFÍ, Borgarbyggðar og fjölmargra sjálfboðaliða. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Borgarbyggð í sumar!“ sagði hann. 

Guðrún Hildur Þórðardóttir, sambandsstjóri UMSB, sagðist vera orðin mjög spennt fyrir unglingalandsmótinu og bætti við að flestir póstar séu orðnir vel mannaðir eftir fundi með framkvæmdanefnd og sérgreinastjórum í vikunni, enda búi UMSB yfir öflugum sjálfboðaliðum sem hafi mikla reynslu af mótahaldi.

 

Allt um mótið á umfi.is

Viðburðasíða mótsins á Facebook

Allt að smella

Undirbúningur gengur vel fyrir Unglingalandsmót UMFÍ 2024 um verslunarmannahelgina. Búið er að velja greinar á mótinu og eru þær eftirfarandi. 

  • Badminton
  • Biathlon
  • Borðtennis
  • Frisbígolf
  • Frjálsar íþróttir
  • Glíma
  • Golf
  • Grasblak
  • Grashandbolti
  • Hestaíþróttir
  • Hjólreiðar
  • Knattspyrna 
  • Kökuskreytingar
  • Hjólreiðar
  • Knattspyrna 
  • Kökuskreytingar 
  • Körfubolti 
  • Pílukast 
  • Skák 
  • Stafsetning 
  • Sund
  • Upplestur 

 

Mótssetning verður á föstudagskvöldi og tónleikar öll kvöldin.