Fara á efnissvæði
22. júní 2017

Upplýsingar fyrir Landsmót UMFÍ 50+

Landsmót UMFÍ 50+ er rétt handan við hornið. Mótsstjórn opnar í grunnskólanum í bænum síðdegis og verður hún opin til klukkan 22:00 í kvöld.

Þeir sem eiga í vandræðum með skráningu á mótið geta haft samband við hana, annað hvort komið við í skólanum eða hringt í síma 868 4382.

Búið er að búa til frábæra mótadagskrá og eru þar helstu upplýsingar um mótið og kort af Hveragerði svo allir geti nú mætt til keppni á réttum tíma á réttan stað.

Nú er um að gera og drífa sig. Mótið hefst í fyrramálið klukkan 10:00 í boccía, sem er langfjölmennasta greinin.

Góða skemmtun.

Mótaskráin í Hveragerði