Fara á efnissvæði

Hvatasjóður

Hvatasjóður

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er nýr sjóður á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn.

Áhersluatriði

Hvatasjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og þátttöku allra barna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fatlanir, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.

Í Hvatasjóðinn geta sótt íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ, íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ, sérsambönd í samstarfi við Íþróttahéruð, félög eða deildir félaga.

Sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem:

  • Auka útbreiðslu og  þátttöku barna í íþróttum.
  • Efla þátttöku barna með fötlun.
  • Efla þátttöku barna frá tekjulægri heimilum.
  • Efla þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Umsóknaferli

Umsóknir eru sendar inn í gegnum vefsíður ÍSÍ og UMFÍ.

  1. Farðu á vefsíðu ÍSÍ eða vefsíðu UMFÍ.
  2. Fylltu út rafrænt umsóknareyðublað.
  3. Sendu umsókn.

Í umsókn skal meðal annars tilgreina:

  • Lýsingu á verkefninu og markmiðum þess
  • Rökstuðning fyrir áhrifum verkefnisins á viðkomandi svæði
  • Tíma- og verkáætlun
  • Fjárhagsáætlun verkefnisins

Úthlutað er úr sjóðum að hámarki fjórum sinnum á ári.

Reglugerð Hvatasjóðsins (pdf)

Lokaskýrsluform (pdf) - vinsamlegast sendið lokaskýrslurnar á netfangið hvatasjodur@siu.is.

Stjórn hvatastjóðs

Sjóðsstjórn er skipuð fimm einstaklingum. Eftirfarandi einstaklingar skipta núverandi stjórn: 

  • Óskar Þór Ármannsson, fyrir hönd Mennta- og barnamálaráðuneytis. 
  • Gunnar Bragason og Þórey Edda Elísdóttir, fyrir hönd ÍSÍ.
  • Guðmundur G. Sigurbergsson og Ragnheiður Högnadóttir, fyrir hönd UMFÍ.

Sækja um í hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar

Opið er fyrir umsóknir í sjóðinn til klukkan 23:59 15. mars 2026.

Sækja um styrk

Úthlutanir úr sjóðnum

  • Alls barst 71 umsóknir. Styrktar voru 52 umsóknir. Heildarúthlutun er 27.800.000 kr.

    Skipt eftir verkefnum:

    • Tengd börnum af erlendum uppruna: 4 samþykktar.
    • Tengd börnum með fötlun: 21 samþykkt.
    • Tengd börnum af tekjulægri heimilum: 9 samþykktar.
    • Þvert á áhersluflokka verkefna: 18 samþykktar. 

    Skipt eftir landshlutum:

    • Höfuðborgarsvæðið: 17 samþykktar: 9,7 m. kr.
    • Suðurnes: 6 samþykktar: 3,4 m. kr.
    • Vesturland: 8 samþykktar: 4,1 m. kr. 
    • Vestfirðir: 5 samþykktar: 3 m. kr.
    • Norðurland vestra: 2 samþykktar: 950 þús kr.
    • Norðurland eysta: 5 samþykktar: 2,4 m. kr. 
    • Austurland: 3 samþykktar: 2,7 m. kr. 
    • Suðurland: 6 samþykktar: 1,5 m. kr. 

     

    Sjá upplýsingar um öll verkefni sem hlutu styrk: Nóvember 2025

  • Alls bárust 91 umsóknir. Styrktar voru 72 umsóknir. Heildarúthlutun er 38.490.000 kr.

    Skipt eftir verkefnum:

    • Tengd börnum af erlendum uppruna: 10 samþykktar: 5.590.000 kr.
    • Tengd börnum með fötlun: 26 samþykktar: 15.000.000 kr.
    • Tengd börnum af tekjulægri heimilum: 5 samþykktar: 1.800.000 kr.
    • Þvert á áhersluflokka verkefna: 31 samþykktar: 16.100.000 k

    Skipt eftir landshlutum:

    • Höfuðborgarsvæðið: 32 samþykktar: 17.990.000 kr.
    • Suðurnes: 3 samþykktar: 1.750.000 kr.
    • Vesturland: 9 samþykktar: 4.550.000 kr
    • Vestfirðir: 1 samþykkt: 300.000 kr.
    • Norðurland vestra: 4 samþykktar: 850.000 kr.
    • Norðurland eysta: 4 samþykktar: 2.000.000 kr.
    • Austurland: 8 samþykktar: 5.500.000 kr.
    • Suðurland: 11 samþykktar: 5.550.000 kr.

     

    Sjá upplýsingar um öll verkefni sem hlutu styrk: Júní 2025

  • Alls bárust 49 umsóknir. Styrktar voru 30 umsóknir. Heildarúthlutun er 20,300.000 kr.

    Skipt eftir verkefnum:

    • Tengd börnum af erlendum uppruna: 8 samþykktar: 6.100.000 kr. 
    • Tengd börnum með fötlun: 11 samþykktar: 7.800.000 kr.
    • Tengd börnum af tekjulægri heimilum: 6 samþykktar: 3.700.000 kr.
    • Þvert á áhersluflokka verkefna: 5 samþykktar: 2.700.000 kr. 

    Skipt eftir landshlutum:

    • Höfuðborgarsvæðið: 7 samþykktar: 4.050.000 kr.
    • Suðurnes: 3 samþykktar: 3.500.000 kr.
    • Vesturland: 7 samþykktar: 4.250.000 kr.
    • Vestfirðir: 2 samþykktar: 1.150.000 kr.
    • Norðurland vestra: 1 samþykkt: 400.000 kr.
    • Norðurland eysta: 6 samþykktar: 3.200.000 kr.
    • Austurland: 2 samþykktar: 1.500.000 kr.
    • Suðurland: 2 samþykktar: 2.250.000 kr.

     

    Sjá upplýsingar um öll verkefni sem hlutu styrk: Janúar 2025.