Fara á efnissvæði

UMFÍ

Sakavottorð

Sakavottorð

Samkvæmt Íþróttalögum og Æskulýðslögum er óheimilt að ráða til starfa hjá aðilum sem falla undir lögin og sinna börnum og ungmennum undir 18 ára aldri í íþróttastarfi einstaklinga sem hlotið hafa refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga eða hafa á síðustu 5 árum hlotið dóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þá mæla íþróttalög sérstaklega fyrir um að sama gildi um einstaklinga sem hlotið hafa refsidóm fyrir brot á 211. gr. eða 218. gr. almennra hegningarlaga. Á þetta einnig við um þá sem falin er umsjón með börnum og ungmennum undir 18 ára aldri á grundvelli sjálfboðaliðastarfs. 

Íþróttafélög hafa lagaheimild til þess að afla upplýsinga úr sakaskrá um ofangreind brot varðandi þá sem þau mynda ráðningarsamband við sem og sjálfboðaliða sem ætlað er að sinna börnum og ungmennum.

Upplýsinganna skal aflað beint frá ríkissaksóknara með samþykki þess sem upplýsingarnar varða.

Samskiptaráðgjafi hefur útbúið bæði leiðbeiningar og eyðublöð um hvernig afla má þessara upplýsinga. Efnið má bæði nálgast á heimasíðu samskiptaráðgjafa og hér að neðan.