Unglingalandsmót
23. júlí 2026
HSK og SS gefa keppendum á Unglingalandsmóti treyjur
Sláturfélag Suðurlands og Héraðsambandið Skarphéðinn (HSK) undirrituðu á þriðjudag nýjan samstarfssamning til þriggja ára. Þetta er mikilvægur samningur fyrir HSK en með samningnum verður áfram hægt að gefa öllum keppendum HSK sem fara á Unglingalandsmót UMFÍ treyjur sem merktar eru HSK og SS.
21. júlí 2026
Ekki gleyma að skrá þig á Unglingalandsmót
Skráning er í fullum gangi á Unglingalandsmót UMFÍ sem verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Opið er fyrir skráningu á mótið til miðnættis á sunnudagskvöld, það er 26. júlí. Það eru því aðeins vikan og helgin sem fólk hefur til stefnu.
15. júlí 2026
Úlfur Úlfur og fleiri halda uppi stöðugu stuði
Dagskrá Unglingalandsmóts UMFÍ á Sauðárkróki er fjölbreytt eins og alltaf. Alla helgina verður keppt í fjölmörgum íþróttagreinum ásamt því að þátttakendur fá tækifæri til að prófa og kynnast nýjum greinum. Skemmti- og afþreyingardagskrá verður í boði á hverjum degi og tónleikar á kvöldin.
02. júlí 2026
Skráning er opin fyrir Unglingalandsmót
Skráning á Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina er í fullum gangi og getur fólk skráð sig og sína til þátttöku fram á miðnætti á sunnudag 26. júlí.
21. apríl 2026
Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki í ár
Þeir Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri sveitarfélagsins Skagafjarðar, Gunnar Þór Gestsson, formaður UMSS, og og Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, skrifuðu í gær undir samninginn um Unglingalandsmót UMFÍ, sem verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina.
12. ágúst 2025
Takk fyrir Unglingalandsmótið
Nú er Unglingalandsmót UMFÍ að baki. Bestu þakkir fyrir að taka þátt í svona mörgum greinum og prófa alls konar nýtt. Takk kæru sjálfboðaliðar fyrir öll litlu og stóru verkefnin, fyrir greinastjórnina, dómgæsluna og fyrir tónlistina og stuðið - og takk samstarfsaðilar.
03. ágúst 2025
Koma frá Svíþjóð á Unglingalandsmót
„Við komum til Íslands á hverju ári og það er fastur liður hjá okkur árlega að fara á Unglingalandsmót,“ segir augnlæknirinn og Skagamaðurinn Gauti Jóhannesson sem kemur með fjölskyldu sína árlega á mótið.
02. ágúst 2025
Anton fann töskuna sína
Anton kom við í þjónustumiðstöð Unglingalandsmótsins í Egilsstaðaskóla og fann þar töskuna sína sem hann hafði gleymt einhversstaðar. Allir munir í töskunni voru á sínum stað. Hefurðu týnt einhverju? Óskilamunir eru í Egilsstaðaskóla.
02. ágúst 2025
Jóhann Steinar: Galdurinn felst í því að vera með
„Við þurfum öll í sameiningu að halda áfram að fjölga leiðum inn í íþróttahreyfinguna, fyrir öll börn – óháð uppruna, bakgrunni eða færni,“ sagði Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, í ávarpi við setningu Unglingalandsmótsins.