Reynslan af Unglingalandsmóti sé lík lærdómi Ódysseifs
„Margir þekkja sögu Ódysseifs, sem segir frá löngu og viðburðaríku ferðalagi þar sem reynsla og lærdómur skiptu meira máli en áfangastaðurinn sjálfur. Á vissan hátt má líkja Unglingalandsmótinu við slíkt ferðalag,“ sagði Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, í ávarpi sínu við setningu Unglingalandsmótsins, sem fram fer á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina.
Hann þakkaði Jóni Sævari Þórðarsyni sérstaklega, en hann er hugmyndasmiður mótsins, sem var haldið í fyrsta sinn á Dalvík árið 1992.
Jóhann Steinar sagði unga iðkendur læra mikið af íþróttum. Á keppnisvellinum lærðu þeir bæði að vinna og tapa, takast á við áskoranir af seiglu og þrautseigju og vinna saman að sameiginlegum markmiðum.
„Við lærum að bera virðingu hvert fyrir öðru og að gleðjast yfir árangri annarra jafnt sem okkar eigin,“ sagði hann og bauð gesti mótsins sérstaklega velkomna, sem voru að sækja það í fyrsta sinn.
„Við sem höfum komið áður vitum hversu mikilvægur hluti af æsku og uppvexti þessi mót geta orðið. Við eigum dýrmætar minningar sem lifa lengi og minnumst gleðinnar, samverunnar og þeirra vina sem við eignuðumst á leiðinni.“
Vel sótt mót
Mótið er afar vel sótt, keppendur rúmlega 1.000 talsins á aldrinum 11–18 ára og því um 5.000–6.000 manns í bænum á sama tíma og tjaldsvæði mótsins. Stór hluti þeirra var viðstaddur setningu Unglingalandsmótsins og sátu gestir í brekkunni framan við frjálsíþróttavöllinn. Á meðal þeirra sem viðstaddir voru setningarathöfnina voru Gunnar Þór Gestsson, formaður Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS), sem jafnframt hélt ávarp, forsvarsfólk sveitarfélagsins og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ.
Á mótssetningunni gengu keppendur á aldrinum 11–18 ára í röðum inn á íþróttavöllinn í skrúðgöngu, hver undir merki síns íþróttahéraðs, gengu þau hring um völlinn og settust síðan í áhorfendastúkuna.
Setningarathöfninni stýrðu þau Ernir Daði Arnbergz og Emilíana Lillý Guðbrandsdóttir. Þau Friðrik Logi Knútsson og Ellen Día Dúfudóttir tendruðu Landsmótseldinn og að því loknu hélt Lára Sigurðardóttir ávarp fyrir hönd keppenda. Hún hvatti keppendur til að taka þátt á eigin forsendum og til þess að virða þær leikreglur sem settar eru. Eftir að Hvítbláinn hafði verið dreginn að hún og eldurinn tendraður var skellt í fjölskyldufjör og íþróttaveislu þar sem allar fjölskyldur á mótinu fengu tækifæri til að prófa fjölda greina.
Ávarp Jóhanns í heild sinni
Forseti ÍSÍ, fulltrúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, kæru þátttakendur, gestir mótsins nær og fjær og síðast en ekki síst kæru sjálfboðaliðar.
Verið hjartanlega velkomin á 27. Unglingalandsmót UMFÍ hér á Sauðárkróki.
Sérstaklega býð ég þau velkomin sem eru að sækja mótið í fyrsta sinn. Þið eigið einstaka helgi fram undan, fulla af upplifunum, nýjum kynnum og skemmtilegum áskorunum.
Við sem höfum komið áður vitum hversu mikilvægur hluti af æsku og uppvexti þessi mót geta orðið. Við eigum dýrmætar minningar sem lifa lengi og minnumst gleðinnar, samverunnar og þeirra vina sem við eignuðumst á leiðinni.
Unglingalandsmótið er sannkallað ævintýri. Hér fáum við ekki aðeins tækifæri til að stunda íþróttir heldur einnig að læra mikilvæga lífsleikni. Þátttaka í skipulögðu íþrótta- og félagsstarfi kennir okkur aga, samvinnu, virðingu og ábyrgð.
Það er sérstakt gleðiefni að með okkur hér í dag er Jón Sævar Þórðarson, sem átti hugmyndina og hafði frumkvæði að fyrsta Unglingalandsmótinu, sem haldið var á Dalvík árið 1992, og vil ég þakka honum innilega fyrir að hafa látið þennan draum sinn verða að veruleika.
Margir þekkja sögu Ódysseifs, sem segir frá löngu og viðburðaríku ferðalagi þar sem reynsla og lærdómur skiptu meira máli en áfangastaðurinn sjálfur. Á vissan hátt má líkja Unglingalandsmótinu við slíkt ferðalag.
Á keppnisvellinum lærum við að vinna og tapa, takast á við áskoranir af seiglu og þrautseigju og vinna saman að sameiginlegum markmiðum. Við lærum að bera virðingu fyrir hvort öðru og að gleðjast yfir árangri annarra jafnt sem okkar eigin.
En það sem gerir þetta mót svo sérstakt er ekki aðeins keppnin. Hér myndast vinátta, gleði og minningar sem geta fylgt okkur alla ævi.
Kæru þátttakendur, njótum helgarinnar saman, tökum þátt af heilum hug og sköpum minningar sem við munum varðveita um ókomin ár.
Ég lýsi hér með 27. Unglingalandsmóti UMFÍ formlega sett!