Fara á efnissvæði

Verkefni

Námskeið

 

 

Námskeið fyrir íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna

Æskulýðsvettvangurinn hefur unnið að þróun verkfæra sem íþrótta- og æskulýðsfélög og aðrir sem starfa með börnum og ungmennum eru hvött til þess að nýta sér til þess að stuðla að inngildandi félagi og starfsemi. Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur UMFÍ, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Fjöldi námskeiða er í boði á vegum Æskulýðsvettvangsins. 

Upplýsingar um einstök námskeið

Samskipti og siðareglur

Námskeið þetta snýr að siðareglum Æskulýðsvettvangsins um samskipti, með áherslu á samskipti ábyrgðaraðila og iðkenda í íþrótta- og æskulýðsstarfi, en þau félagasamtök sem saman mynda Æskulýðsvettvangsinn leggja áherslu á að stuðla að jákvæðum samskiptum, þar sem hver og einn er ábyrgur fyrir orðum sínum og gjörðum.

Verndum þau

Æskulýðsvettvangurinn hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau. Námskeiðið er byggt á efni samnefndrar bókar og fjallar um hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa með börnum og ungmennum og öðrum áhugasömum.

Einelti í íþróttum

Til þess að hægt sé að koma í veg fyrir einelti og aðra óæskilega hegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi og tryggja farsæla úrlausn mála þegar samskiptavandi eða einelti kemur upp í slíku starfi er mikilvægt að þeir sem starfa með börnum og ungmennum geti lesið í vísbendingar um samskiptavanda og einelti, þekki mismunandi birtingarmyndir þess og viti hvernig bregðast eigi við þegar slíkt kemur upp.

Hatursorðræða

Hatursorðræða er vaxandi vandamál í íslensku samfélagi og hatursorðræða á netinu er ein af þeim stóru hættum sem steðja að börnum og ungmennum í dag. Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um leiðir til að koma í veg fyrir að börn og ungmenni tileinki sér slíka hegðun.

Hinsegin fræðsla

Á námskeiðinu er fjallað um öll helstu hugtökin innan hinsegin regnhlífarinnar, hvað þau þýða og hvað við getum gert til að styðja við bakið á hinsegin fólki og íþróttafélögum.

Skjánotkun

Á þessu námskeiði er farið yfir mismunandi þætti sem snúa að skjánotkun barna og ungmenna, muninn á síma- og símalausum skóla ásamt því hvernig er hægt að styrkja sig sem leiðtoga í starfi. Opið er fyrir umræður og spurningar.