Fara á efnissvæði

15. ágúst 2026

Drulluhlaup

Drulluhlaup UMFÍ og Krónunnar

Nú er aldeilis tilefni til að draga skítugu fötin fram úr skápnum. Drullu- og hindrunarhlaup UMFÍ og Krónunnar fer fram í Mosfellsbæ laugardaginn 15. ágúst. Í hlaupinu vinnur fjölskyldan, saumaklúbburinn, vinahópurinn og húsfélagið að því að komast í mark í skítugasta hlaupi ársins. Viðburðurinn er fyrir alla fjölskylduna og eða einstaklinga. Hér skiptir tíminn engu máli. Góða skapið og samhent gleði þarf til að komast í gegnum allar hindranirnar á leiðinni.

Áhersla er lögð á skemmtilega hreyfingu, gleði og samvinnu.

Helstu upplýsingar

  • Hvar: Íþróttamiðstöðinni Varmá Mosfellsbæ.
  • Dagsetning: Laugardagur 15. ágúst 2026.
  • Hvenær: Kl. 09:30 - 15:00. Ræst út í hollum á nokkurra mínútna fresti.
  • Ráshópar: Við skráningu velur þú ráshóp með rástíma sem hentar. 
  • Hlaupaleið: Leiðin er samtals 3,5 km og inniheldur 21 hindrun.
  • Upphaf: Við Íþróttamiðstöðina Varmá.
  • Endir: Við Íþróttamiðstöðina Varmá.
  • Umsjón: Ungmennafélagið Afturelding, Krónan og UMFÍ.
Fyrir hverja er við viðburðurinn?

Viðburðurinn er fyrir alla fjölskylduna og eða einstaklinga þar sem tíminn skiptir ekki máli heldur að komast í gegnum allar hindranirnar á leiðinni. Áhersla er lögð á skemmtilega hreyfingu, gleði og samvinnu.

Hvernig fer viðburðurinn fram?

Hlaupaleiðin er drulluskemmtileg og krefjandi. Hringurinn er 3,5 km langur með fjölda hindrana sem þarf að yfirstíga. Fjölskyldur hlaupa saman og hjálpast að við að komast í gegnum hindranirnar eða leysa saman þrautirnar. Allir 8 ára og eldri ættu að komast í gegnum brautina með aðstoð foreldra og/eða forráðarmanna.

Tíu einstaklingar verða ræstir út með 2 mínútna millibili frá kl. 09:30 - 12:00. Við skráningu fá þátttakendur úthlutuðum tíma.

Rás- og endamark er staðsett við Íþróttahúsið við Varmá og þar verður partýstemning frá því að hlaupið hefst og þar til því lýkur. Þar verður hægt að hvetja keppendur áfram og njóta samverustundar með fjölskyldum og vinum. Sérstök drullubraut verður á svæðinu fyrir börn yngri en átta ára. 

Er hægt að skola af sér eftir hlaupið?

Já! Það verður skolstöð á staðnum og frítt í sund fyrir þátttakendur í Varmárlaug. 

Hvað kostar og hvernig fer skráning fram?
  • Einstaklingsskráning: 3.900 kr. á mann.
  • 2 manna hópur 6.900 kr.
  • 3 manna hópur 8.900 kr.
  • 4 manna hópur 10.900 kr.
  • 5 manna hópur 12.400 kr.
  • 6 manna hópur 13.900kr.
  • Og svo frv. aukaeinstaklingur í hóp greiðir 1.500kr. 

ATH afsláttur á hópinn reiknast í greiðsluferlinu! Þú safnar bara í körfuna öllum þátttakendum og afslátturinn kemur inn áður en þú greiðir.

Afhending hlaupagagna

Hlaupagögn verða afhent í verslun Krónunnar í Mosfellsbæ fimmtudaginn 13. ágúst milli kl. 17:00 og 19:00. Fyrir þau sem ómögulega komast að sækja gögnin fyrirfram þá verður stöð við Varmá fyrir hlaup þar sem hægt verður að sækja gögnin. Við hvetjum alla til að sækja gögnin áður til að minnka örtröðina og auðvelda ræsingu í hlaupið.

Skella mér í drulluhlaup!

Opið er fyrir skráningu.

Kaupa miða