Fara á efnissvæði

UMFÍ

Gervigreindar- stefna

UMFÍ nýtir gervigreind (e. artificial intelligence, AI) í starfi sínu til þess að létta vinnu, auka skilvirkni og styðja við nýsköpun. Stefnunni er ætlað að upplýsa um það hvernig félagið notar gervigreind, hvaða meginreglur gilda um notkunina og hvar mörkin liggja, meðal annars með tilliti til persónuverndar og öryggis.

Markmið stefnunnar

Markmið stefnunnar er að tryggja að nýting gervigreindar (AI) innan UMFÍ sé ábyrg, siðferðileg og styðji við hlutverk félagsins. Gervigreind á að vera tæki til að létta vinnu, auka skilvirkni og hvetja til nýsköpunar, en aldrei á kostnað mannlegra samskipta, öryggis eða persónuverndar.

Meginreglur UMFÍ

Mannlegi þátturinn í fyrirrúmi: Gervigreind kemur aldrei í staðinn fyrir persónuleg tengsl, samfélag og það starf sem fram fer innan UMFÍ. Tæknin er stuðningstæki, ekki staðgengill.

Gagnsæi: Við erum opin með það hvenær og hvernig við notum gervigreind, sérstaklega ef hún er notuð við gerð efnis eða ákvarðanatöku. 

Persónuvernd og öryggi: Við gætum fyllsta öryggis og fylgjum persónuverndarlögum (GDPR). Gögn um börn, ungmenni og sjálfboðaliða eru aldrei sett í opin gervigreindarkerfi.

Ábyrgð: Starfsfólk og sjálfboðaliðar bera alltaf ábyrgð á því efni og þeim niðurstöðum sem gervigreind hjálpar til við að skapa. Aldrei má treysta gervigreind í blindni. Notendur gervigreindartóla skulu ávallt vera ábyrgir við notkun þess og hafa gagnrýni hugsun. 

Leyfileg og æskileg notkun gervigreindar

Starfsfólk UMFÍ er hvatt til að nota gervigreind á ábyrgan hátt t.d. við aðstoð við eftirfarandi atriði:

  • Hugmyndavinna og skipulag: Fá hugmyndir að viðburðum, verkefnum, dagskrám eða fyrirsögnum.
  • Umsýsla og skrifstofustörf: Leiðrétta texta, þýða efni, taka saman fundargerðir (án viðkvæmra persónuupplýsinga) eða semja drög að tölvupóstum.
  • Efnissköpun: Aðstoð við gerð kynningarefnis fyrir vefinn (umfi.is) og samfélagsmiðla, svo lengi sem efnið sé yfirfarið og staðreyndatékkað af mönnum.
  • Gagnaúrvinnsla: Hægt er að fá aðstoð frá gervigreind við að vinna úr gögnum og getur það bæði sparað tíma og hjálpað við úrvinnslu.

Búið er að samþykkja gervigreindartólið Claude og er allt starfsfólk komið með vinnuaðgang tengdan vinnunetfanginu sínu að Claude.

Takmarkanir og bönn (Rauðu línurnar)

Skráning og vinnunetföng: Þegar gervigreindartól eru nýtt í þágu UMFÍ, eða við gerð efnis á vegum félagsins, skal ávallt nota aðgang sinn útfrá netfangi samtakanna (@umfi.is netfang).

Óheimilt er að nota persónuleg netföng eða einkareikninga til að vinna með gögn eða efni hreyfingarinnar.

Deiling persónuupplýsinga: Óheimilt er að setja nöfn, kennitölur, netföng, ljósmyndir eða aðrar persónugreinanlegar upplýsingar um iðkendur, sjálfboðaliða eða starfsfólk inn í opin gervigreindartæki (t.d. ChatGPT, Copilot, Midjourney). Ef undantekningu er krafist þarf að sækja um það og verða gerðar viðeigandi ráðstafanir til að vera viss um að gögnin fari ekki út af vél UMFÍ.

Staðreyndavillur og „gervigreindar-ofskynjanir“ (e. hallucinations): Gervigreind getur búið til rangar upplýsingar. Það er óheimilt að birta efni á miðlum UMFÍ án þess að manneskja hafi lesið það yfir og staðfest að upplýsingarnar séu réttar. Notandi gervigreindarinnar er alltaf ábyrgur fyrir því efni sem hann birtir og þar með að staðreyndir séu réttar. Gervigreind skal ávallt vera notuð með varkárni og gagnrýnni hugsun.

Myndskreytingar og áreiðanleiki: Þegar gervigreind er notuð til að búa til myndir skal tryggja að þær sýni fjölbreytileika og endurspegli gildi UMFÍ. Ef mynd er augljóslega gerð með hjálp gervigreindar og gæti villt um fyrir fólki, skal merkja hana sérstaklega (t.d. „Mynd: Gervigreind/UMFÍ eða nafni notanda“).

Innleiðing, fræðsla og endurskoðun

Fræðsla: UMFÍ leggur áherslu á að fræða starfsfólk og stjórnarfólk sitt um örugga og hagnýta nýtingu gervigreindar.

Endurskoðun: Þar sem tækninni fleygir hratt fram, skal þessi stefna endurskoðuð af Upplýsingatækninefnd UMFÍ a.m.k. einu sinni á hverju kjörtímabili stjórnar til að tryggja að hún samræmist nýjustu tækni og lögum. 

Stjórn UMFÍ samþykkti gervigreindarstefnu á stjórnarfundi 5. september 2026.