Fara á efnissvæði
30. júlí 2026

Þátttakendur flykkjast á Krókinn

Undirbúningur fyrir Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki er á lokametrunum í þeirri brakandi blíðu sem brast óvænt á, þvert á spár. Rúmlega þúsund þátttakendur á aldrinum 11 – 18 ára eru skráðir til leiks á mótinu og ljóst að með foreldrum og forráðafólki og yngri systkinum en 11 ára verða á bilinu 5-6000 manns á mótinu um helgina. 

Þátttakendur eru farnir að flykkjast í bæinn til að ná í mótsgögn, mótaskrá og koma sér fyrir á tjaldsvæði mótsins, sem er á Nöfunum rétt ofan við íþróttasvæðið. Þar er nú þegar kominn fjöldi hjólhýsa og öðrum hýsum. 

Mjög gott veður er í Skagafirði í dag, mun betra en spár gerðu ráð fyrir og eru því margir úti að njóta blíðunnar.

Allt er gert til að mótsgestir njóti samverunnar og upplifunar á Sauðárkróki og að enginn verði svangur. Heilbrigðiseftirlitið hefur tekið aðstöðuna út í veitingatjaldinu og stendur ekkert í vegi fyrir því að fá sér gott í gogginn á mótssvæðinu um verslunarmannahelgina. 

Keppni hefst í fyrstu grein í dag klukkan 15:00. Í dag verður keppt í golfi, júdó og krakkahreysti.

Í kvöld verður Danskeppni – freestyle í íþróttahúsinu. Ekki þarf að skrá sérstaklega í keppnina, nóg er að mæta á réttum tíma, fá númer og sýna danshæfileikana. Í keppninni skiptir máli að skemmta sér og öðrum. 

 

Hægt er að skoða alla dagskrá mótsins hér:

Dagskrá Unglingalandsmóts