Fara á efnissvæði
05. júní 2025

12,6 milljónum úthlutað úr Fræðslu- og verkefnasjóði

Margvísleg verkefni hlutu styrki úr vorúthlutun Fræðslu- og verkefnasjóðs UMFÍ. Sjóðurinn úthlutaði rétt tæpum 12,6 milljónum króna til 73 verkefna. Alls bárust 82 umsóknir um styrki til sjóðsins. 

Verkefnin eru mjög fjölbreytt, allt frá þjálfaranámskeiðum og eflingu badmintons, fræðsluerinda ýmis konar, fræðsluferða til Danmerkur, til sagnaritunar og margt fleira. 

Úthlutað er tvisvar á ári úr Fræðslu- og verkefnasjóði UMFÍ. 

Markmið sjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar í samræmi við stefnu UMFÍ, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi.

Rétt til umsóknar úr sjóðnum eiga sambandsaðilar UMFÍ, aðildarfélög sem eru virk í starfi og deildir innan þeirra. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.

Umsækjendur sem hljóta styrk þurfa að skila inn skýrslu á ákveðnu lokaskýrsluformi og senda til þjónustumiðstöðvar UMFÍ á netfangið umfi@umfi.is. 

Umsóknarfrestir eru tveir á ári. Að vori er opnað fyrir sendingu umsókna í sjóðinn 1. apríl ár hvert og hægt að senda umsóknir inn til og með 1. maí. Að hausti opnar fyrir umsóknir 1. október og er hægt að senda umsóknir inn til og með 1. nóvember.

 

Meira um Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ

Sjá fyrri úthlutanir ársins 2025