Fara á efnissvæði
24. júní 2025

39 milljónum króna úthlutað úr Hvatasjóði

Annarri úthlutun er lokið úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar. Alls barst 91 umsókn í sjóðinn upp á rúmar 128 milljónir króna. Samþykktar voru 72 umsóknir og úthlutað tæpum 38,5 milljónum króna. 

Úthlutanir eru í samræmi við áhersluatriði sjóðsins. Hér að neðan má sjá hvernig umsóknir skiptust eftir áhersluflokkum, fjöldi samþykkta og úthlutun úr sjóðnum. Sömuleiðis má sjá úthlutun eftir landshlutum. 

 

Umsóknir skiptust eftirfarandi
  • Börn með fötlun: 26 samþykktar: 15.000.000 kr.
  • Börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn: 10 samþykktar: 5.590.000 kr.
  • Börn frá tekjulægri heimilum: 5 samþykktar: 1.800.000 kr.
  • Annað og blandaðir áhersluflokkar: 31 samþykkt: 16.100.000 kr.

 

Eftir landshlutum

Umsóknir bárust frá öllum landshlutum:

Austurland: 8 samþykktar: 5.500.000 kr.

Höfuðborgarsvæðið: 32 samþykktar: 17.990.000 kr.

Norðurland eystra: 4 samþykktar: 2.000.000 kr.

Norðurland vestra: 4 samþykktar: 850.000 kr.

Suðurland: 11 samþykktar: 5.550.000 kr.

Suðurnes: 3 samþykktar: 1.750.000 kr.

Vesturland: 9 samþykktar: 4.550.000 kr.

Vestfirðir: 1 samþykkt: 300.000 kr.

 

Hér má sjá úthlutunina úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar í júní 2025.

Úthlutun