Afslættir á viðburði rjúfi félagslega einangrun
Öryrkjum og ellilífeyrisþegum hættir til að einangra sig. Þátttaka á viðburðum og samneyti við annað fólk er heilsubót. Íþróttafélög og fleiri ættu því að finna ráð til að gera fólki í þessum hópi kleift að sækja viðburði, segir Páll Ásgrímur Jónsson, Garðbæingur ársins 2023.
„Það er svo ofboðslega sorglegt hvað mörg eru félagslega einangruð. Mig langar þess vegna svo mikið að geta hjálpað fólki að brjótast út úr einangruninni, komast út og fara á íþróttaviðburði og menningarviðburði,“ segir Páll Ásgrímur Jónsson.
Páll er gallharður Stjörnumaður úr Garðabæ og þekktur undir gælunafninu Páló. Hann hefur frá bernsku glímt við ýmsar raskanir og þekkir því vel hversu slæmar afleiðingar það hefur að loka sig af.
„Á sínum tíma einangraði ég sjálfan mig í töluverðan tíma. Mér leið líka afskaplega illa. En ég fékk hjálp við mínum málum og er ótrúlega þakklátur. Það er ofboðslega sorglegt hvað þetta er mikið af fólki og hvað afleiðingarnar eru slæmar. Þess vegna vil ég nýta mína reynslu til góðs,“ segir hann og telur eina af þeim lausnum sem geti hjálpað fólki að taka þátt í viðburðum að íþróttafélög og aðrir viðburðahaldarar bjóði öryrkjum og ellilífeyrisþegum leiðir til að virkja örorkuafslætti, rétt eins og Strætó geri.
Páló gerir mikið af því að sækja íþróttaviðburði og er fastagestur á leikjum Stjörnunnar í boltagreinum og segir það hafa gert sér gott.
„Þegar ég fer á leiki þá snúast þeir um fleira en leikina sjálfa. Félags- legi þátturinn er mikilvægari. Ég hef kynnst fullt af góðu fólki í gegnum Stjörnuna, fólki sem ég lít á sem vini og kunningja enda hefur það og félagið hjálpað til við að bæta sjálfstraust mitt. Það er nefnilega svo mikilvægt að fólk finni að það sé með,“ segir hann. Hann hvetur stjórnendur íþróttafélaga til að bjóða öryrkjum og ellilífeyrisþegum afslætti á leiki, það geti aukið líkurnar á því að fólk brjótist út úr einangrun og taki þátt í viðburðum, þar á meðal íþróttaviðburðum.
Hvetur til að bjóða upp á afslætti
„Ég tók eftir því í Bestu deildinni í fyrrasumar að það voru aðeins tvö lið með miða inni á Stubbi sérstaklega ætlaða fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega. Þetta sést ekki hjá öðrum. Ég held að það væri gott að fá að vita áður en ég kaupi miða eða mæti á leik hvort afslættir séu í boði fyrir ákveðna hópa,“ segir Páll og bendir á að stundum hafi hann mætt á leiki ýmissa liða og verið hleypt fram hjá ef vinir eða ættingjar voru í dyrunum eða komist inn á sérafslætti.
Betra væri ef afslættir væru uppi á borðum áður en farið er af stað. Páló mælir með því að forsvarsfólk menningarviðburða og fleiri bjóði upp á þetta sömuleiðis og geti farið í samstarf við miðasölufyrirtæki um það til að rjúfa félagslega einangrun fólks.
„Ég hef farið á tónleika með vini mínum undanfarið og fengið þakklæti fyrir það. Enda er miklu betra að fara út og taka þátt en að hanga heima og vita ekki hvað mann langar til að gera. Ég hafði einfaldlega ekki sjálfstraust til að gera nokkuð.“
Páll var útnefndur Garðbæingur ársins 2023 og er hann afar stoltur af því. Hann fékk fjölmargar tilnefningar frá bæjarbúum Garðabæjar og útnefndi dómnefnd hann. Við útnefninguna sagði Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, að Páll hefði einstakt lag á því að vera jákvæður og hlýlegur. Hann minnti á mikilvægi þess að iðka góð samskipti, gildi góðra samskipta og mikilvægi þess að vera góður samborgari.
Þú getur lesið allt í Skinfaxa
Viðtalið er allt er í Skinfaxa, tímariti UMFÍ. Þú getur smellt á myndina hér að neðan og lesið rafræna útgáfu af blaðinu.
Þú getur líka smellt hér og fengið nýjasta tölublað Skinfaxa sent til þín í tölvupósti um leið og það kemur út. Áskriftin er ókeypis.
Smelltu hér: