Fara á efnissvæði
23. mars 2026

Auðunn er nýr formaður USAH

„Ég er fullur tilhlökkunar og til þess að takast á við áskoranir í íþróttastarfi, þá helstu að finna leið til að fjölga fólki í starfinu, fengið það til að vera með,“ segir Auðunn Steinn Sigurðsson, nýr formaður Ungmennasambands Austur-Húnvetninga (USAH). Hann tók við formannsstólnum á ársþingi sambandsins um helgina af Snjólaugu Maríu Jónsdóttur, sem hefur verið formaður frá árinu 2022. Snjólaug hélt ávarp á þinginu og kvaddi þar formannsstólinn. 

Auðurinn er ekki nýgræðingur í stjórn USAH því hann hefur setið í henni áður.
Halldór Lárusson, svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna á Norðurlandi vestra, var fundarstjóri á þingi USAH.

Peturína L. Jakobsdóttir og Selma Erludóttir fengu starfsmerki UMFÍ. Ómar Bragi Stefánsson, verkefnastjóri UMFÍ, var fulltrúi UMFÍ á þinginu og afhenti hann þeim merkin. 

Á þinginu var fagnað 100 ára afmælis Umf. Fram. Finnbogi Guðmundsson, Valur Valsson og Snjólaug, fráfarandi formaður USAH, voru heiðruð með silfurmerki ÍSÍ og Ólafur S. Benediktsson hlaut Hvatningarverðlaun USAH fyrir heilsueflingu á sambandssvæði USAH. 

 

Meira um Selmu

Selma hefur um áratugaskeið verið boðin og búin til ýmissa starfa á vegum hestamennskunar í Húnaþingi. Minnsta kosti má rekja þá sögu aftur til ársins1991 en þá annaðist hún gerð mótaskrár auk annars. Um árabil var hún í stjórn hestamannafélagsins Neista og alla jafna sem gjaldkeri. Hún hefur unnið að öllu því sem þessu starfi fylgir, mótahaldi, sýningarhaldi, æskulýðsstarfi, 17. júní hátíðarhöldum, fjórðungsmótum, félagshesthúsi og landsmótum, þrifum á reiðhöll og guð má vita ekki hverju. Allra mest eigum við þó henni að þakka að halda utan um bókhald, reikninga, ársreikninga, sýningarskráagerð og skýrsluhald ýmiss konar í fjölda ára. 

 

Meira um Péturína

Péturína hefur verið í stjórn ungmennafélagsins Fram á Skagaströnd í yfir 10 ár. Hún hefur stýrt fjölmörgum viðburðum á vegum Fram og komið að öllum þáttum í starfsemi félagsins. Hún hefur verið mikilvægur tengiliður við íþróttafélögin í nágrannabyggðunum en fyrir það samstarf fengu þau (ungmennafélögin Fram, Kormákur, Hvöt og Tindastóll) hvatningarverðlaun UMFÍ. Peta hefur sinnt gjaldkerastarfinu mest allan tímann sem hún hefur verið í stjórn Fram. Einnig verið gjaldkeri björgunarsveitarinnar enda er hún Peta sjálfboðaliði sem gustar af. Peta hefur einnig starfað fyrir önnur félög í héraðinu ásamt því að starfa fyrir USAH.

 

Hér að neðan má sjá Ómar eftir afhendingu starfsmerkja. Selma er við hlið hans en Péturína var ekki viðstödd þingið.