Fara á efnissvæði
13. mars 2026

Bílastæði og miðar á sýningu Verdensholdet

Uppselt er á sýningu danska hópsins Verdensholdet, sem fram fer í íþróttahúsinu í Ásgarði í Garðabæ í dag. Af þeim sökum er gott að hafa ýmislegt í huga til að njóta sýningarinnar enn betur – af því að þetta verður upplifun! 

  • Engin miðasala verður á staðnum. Við ítrekum að uppselt er á sýninguna.
  • Fjöldi bílastæða er takmarkaður við íþróttahúsið og því mælum við með að fólk samnýti bíla. Bílastæði er á nokkrum stöðum, fyrir framan íþróttahús Stjörnunnar og aftan við það. Eins má nýta bílastæði við Flataskóla.
  • Íþróttasalurinn opnar fyrir gesti klukkan 17:30.
  • Sýning Verdensholdet hefst klukkan 18:00 og stendur í um tvær klukkustundir með hléi.

Tökum þetta á ungmennafélagsandanum, látum gleðina ríkja og megið þið njóta þessarar skemmtilegu stundar með vinum okkar frá Danmörku. 

Góða skemmtun!

En bíðum við, finnurðu ekki miðann þinn? Engar áhyggjur. Við höfum tekið saman leiðbeiningar.

 

Svona nærðu í miðana þína

Þegar komið er á sýninguna þarf að opna miðana í Stubbi og sýna QR-kóða þegar gengið er inn í íþróttahúsið. Alltaf er gott að fá leiðbeiningar um það hvernig á að nota þessa rafrænu miðatækni. Við höfum því tekið saman upplýsingar um það hvernig nálgast á miðana.

  • Ef þú ert ekki með smáforritið Stubb þá geturðu fundið það í forritaverslunum Android og Apple.
  • Á myndunum hér að neðan geturðu séð hvernig Stubbur lítur út í forritaverslun Apple fyrir iPhone-síma. Ef þú ert ekki með forritið uppsett þá ýtirðu á hlekkinn hér að ofan og hleður því niður í símann.
  • Þegar þú hefur skrifað inn þær upplýsingar sem óskað er eftir þá geturðu opnað forritið.
  • Þínir miðar birtast þar sem rauði hringurinn er hér á myndinni að neðan.
  • Á annarri mynd sést hvar miðarnir þínir eru vistaðir. 
     
Opinn fundur um íþróttir og hreyfingu

Við minnum jafnframt á að á morgun, á laugardag 14. mars, standa Charlotte Bach Thomassen, formaður dönsku landssamtakanna DGI (Danske gymnastik- og idrætsforeninger), og Jens Otto Størup, framkvæmdastjóri DGI, fyrir opnum fundi um stöðu íþrótta, hreyfingar og lýðheilsu í Danmörku og áskoranir og tækifæri.

  • Hvernig hefur samstarf DGI og DIF mótast í gegnum árin
  • Hvernig leiddi lýðheilsuverkefnið Bevæg dig for livet til þess að fleiri Danir hreyfa sig nú en áður?
  • Hvernig tókst íþróttahreyfingunni að fá átta ráðuneyti til að sameinast um íþróttamál?
  • Áherslur í stefnumótun íþróttahreyfingarinnar í Danmörku í 10 ár.
  • Áskoranir og tækifæri í íþróttahreyfingunni fram undan.  

Fundurinn fer fram í íþróttamiðstöðinni í Laugardal 14. mars á milli klukkan 13:00 - 15:00.

Öll áhugasöm eru hvött til að mæta.