04. mars 2026
Danskir dagar í hreyfingunni
Charlotte Bach Thomassen, formaður dönsku landssamtakanna DGI (Danske gymnastik- og idrætsforeninger), og Jens Otto Størup, framkvæmdastjóri DGI, standa fyrir opnum fundi um stöðu íþrótta, hreyfingar og lýðheilsu í Danmörku og áskoranir og tækifæri.
Fundurinn verður laugardaginn 14. mars á milli klukkan 13:00 - 15:00.
Umræðuefni í stuttu máli:
- Hvernig hefur samstarf DGI og DIF mótast í gegnum árin?
- Hvernig leiddi lýðheilsuverkefnið Bevæg dig for livet til þess að fleiri Danir hreyfa sig nú en áður?
- Hvernig tókst íþróttahreyfingunni að fá átta ráðuneyti til að sameinast um íþróttamál?
- Áherslur í stefnumótun íþróttahreyfingarinnar í Danmörku í 10 ár.
- Áskoranir og tækifæri í íþróttahreyfingunni fram undan.
Fundurinn fer fram í þjónustumiðstöð UMFÍ á þriðju hæð Íþróttamiðstöðvarinnar við Engjaveg 6 í Reykjavík.
Þau sem vilja geta tekið þátt í fundinum á Teams geta óskað eftir því á netfangið umfi@umfi.is.