Ertu búin/n að skrá þig á Landsmót UMFÍ 50+?

Nú er heldur betur farið að styttast í Landsmót UMFÍ 50+ í Fjallabyggð. Skráning er í fullum gangi og verður opið fyrir hana út mánudaginn 23. júní.
Ertu búin/n að skrá þig og þína?
Mótið er haldið í samstarfi við Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar (UÍF) og sveitarfélagið Fjallabyggð. Íþróttaviðburðir fara fram á Siglufirði en taka að færast yfir á Ólafsfjörð á laugardaginn.
Íbúar á svæðinu hafa lagt heilmikið á sig til að gera mótið að því besta í heimi og taka á móti góðum gestum af öllu landinu sem þangað kemur til að taka þátt í líflegu íþróttamóti.
Mót fyrir fólk á öllum aldri
Þótt Landsmót UMFÍ 50+ sé hugsað fyrir fólk sem verður fimmtugt á árinu og eldri þátttakendur þá geta allir sem vilja tekið þátt í mörgum keppnisgreinum.
Fimmtudagur og föstudagur
Þau sem vilja vera snemma í því geta komið á staðinn fimmtudaginn 26. júní. Þjónustumiðstöð mótsins á Ólafsfirði opnar klukkan 17:00. Keppni hefst í boccía á Siglufirði daginn eftir. Þar verður götuhlaup fyrir alla aldurshópa klukkan 18:00 og keppt í ringó. Mótið verður sett í íþróttahúsinu á Siglufirði klukkan 21:00.
Laugardagur
Laugardaginn 28. júní verður svo keppt í sundi, golfi og bridds, badmintoni, pílukasti, pokavarpi og í frjálsum íþróttum.
Heilsutékk verður í boði bæði á Ólafsfirði og Siglufirði þennan dag fyrir skráða þátttakendur á mótinu.
Eins má búast við lífi og fjöri við íþróttahúsið Ólafsfirði en þar geta gestir og gangandi prófað alls konar íþróttagreinar.
Matar- og skemmtikvöld verður á veitingastaðnum Rauðku á Siglufirði um kvöldið.
Kaupa þarf miða sérstaklega á matar- og skemmtikvöldið og verður opið fyrir kaupin sömuleiðis út mánudaginn 23. júní. Boðið verður upp á rútuferðir frá Ólafsfirði og til baka að því loknu.
Sunnudagur
Sunnudagurinn hefst með sundleikfimi fyrir alla sem vilja, því næst fer fram keppni í skotfimi, pútti, frjálsum íþróttum og stígvélakasti. Á sama tíma verður keppt í pönnukökubakstri, sem er afskaplega spennandi og fjölsótt grein.
Ertu búin/n að skrá þig og þína?


