Fjárframlög til íþrótta fatlaðra skila sér margfalt til baka

Niðurstöður nýlegrar rannsóknar benda til að hvert framlag til íþrótta fatlaðra (para-íþróttir) rúmlega fjórfaldast. Rannsóknin var gerð á vegum bresku samtakanna Activity Alliance, sem vinna að því að tryggja jafnrétti fatlaðs fólks til þátttöku í íþróttum og hreyfingu.
Málið var skoðað á síðasta ári og er þar gerð tilraun til að meta samfélagslegt virði þess að fólk með fötlun stundi íþróttir og hreyfingu í meiri mæli. Fram kemur í inngangi skýrslu samtakanna að niðurstöðurnar eigi að nota til að móta stefnu og hvetja til fjárfestingar í bættu aðgengi og þátttöku fatlaðs fólks í hreyfingu og opna augu almennings fyrir þeim hindrunum sem fólk með fötlun mætir.
Í skýrslunni er stuðst við mælikvarðann Wellby (e. wellbeing-adjusted life year) í því skyni að setja verðmiða á vellíðan.
Helstu niðurstöður skýrslunnar:
1. Mikill munur á virkni og vellíðan:
- 41% fatlaðs fólks er óvirkt samanborið við 21% ófatlaðs fólks.
- Meðallífsgæði fatlaðs fólks eru 5,7 á skalanum 0–10, en 7,4 hjá ófötluðum.
2. Hreyfing hefur meiri áhrif á vellíðan fatlaðs fólks:
- Áhrif þess að vera virkur (150+ mínútur á viku) eru þrefalt meiri fyrir fatlað fólk en ófatlað.
- Jafnvel létt hreyfing (sem ekki telst með í opinberum viðmiðum) skilar verulegum ávinningi.
3. Fjárhagslegur ávinningur (WELLBY aðferð):
- Létt hreyfing: 4.400 pund á einstakling á ári.
- Hófleg hreyfing (1–149 mín.): 4.500 pund á mann á ári.
- Full virkni (150+ mín.): 6.200 pund x á einstakling á ári.
- Til samanburðar: Ávinningur af því að vera í vinnu frekar en atvinnulaus er metinn á 7.000 pund á ári.
Fjárhagslegur ávinningur fyrir samfélagið
- Núverandi virknistig fatlaðs fólks skilar samfélaginu:
- 35,9 milljörðum punda í samfélagslegum ávinningi á ári.
- Þar af er ávinningur fólks sem eingöngu stundar létta hreyfingu 3,5 milljarðar punda.
- Ef fatlað fólk væri jafn virkt og ófatlað:
- Þá myndi samfélagslegur ávinningur nema 10,9 milljörðum punda á ári.
- Ef helmingur þeirra sem ekki hreyfa sig myndu stunda létta hreyfingu:
- Ávinningurinn væri 6,1 milljarður punda á ári.
Niðurstaðan:
Fjármögnun íþróttastarfs og hvatning til hreyfingar meðal fatlaðs fólks skilar miklum samfélagslegum og fjárhagslegum ávinningi. Jafnvel lítil hreyfing getur haft stór áhrif á lífsgæði og vellíðan, og því ætti að leggja áherslu á að styðja við fjölbreyttar leiðir til þátttöku.
Hægt er að lesa meira hér um Activity Alliance.
Skýrsluna má lesa í heild hér að neðan: