Fara á efnissvæði
24. júní 2025

Forseti Íslands boðar komu sína á Landsmót UMFÍ 50+

Afar góð skráning er á Landsmót UMFÍ 50+ sem fram fer í Fjallabyggð um næstu helgi. Mótið verður sett á föstudag og hafa Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, maður hennar, boðað komu sína á setninguna. 

Rúmlega 300 einstaklingar eru skráðir til leiks. Þar af eru 30 lið í boccía. 

 

Fjöldi í stærstu greinum má sjá hér:

Boccía: 30 lið eða 90 manns.

Bridge: 15 lið.

Frjálsar íþróttir: 130 skráningar.

Golf: 37.

Ringó: 11 lið.

Pútt: 14 lið - 61 einstaklingur.

Stærsti hópur þátttakenda kemur frá Ungmenna- og íþróttasambandi Fjallabyggðar (UÍF) eða 64. Næstflestir þátttakendur koma frá Ungmennasambandi Borgarfjarðar (UMSB) eða 37. Fast á hæla þeirra eru þátttakendur frá Héraðssambandinu Skarphéðni (HSK) eða 35. Þá eru skráðir 26 þátttakendur undir merkjum Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK) og 22 frá Íþróttabandalagi Akureyrar (ÍBA). Góð þátttakaka er líka frá Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar (ÍRB) eða 19 skráðir einstaklingar. Frá Héraðssambandi Vestfirðinga (HSV) koma 17 og frá Ungmennasambandi Vestur-Húnvetninga (USVH) eru skráðir 16 þátttakendur. 

Önnur íþróttahéruð eru með færri skráða þátttakendur. 

Slík er aðsóknin á matar- og skemmtikvöldið sem fram fer á Rauðku á Siglufirði á laugardag að uppselt er inn. Hvorki fleiri né færri en 120 manns ætla að njóta matar og skemmtunar á mótinu. 

Lokað var fyrir skráningu í greinar mótsins í gærkvöld. Sérgreinastjórnar fengu upplýsingar um skráningu í dag og eru þeir á fullu að ganga frá áður en leikar hefjast í Fjallabyggða á föstudag. 

 

14 greinar og fleira í boði

Boðið verður upp á keppni í 14 greinum á landsmótinu fyrir þátttakendur 50 ára og eldri. En auk þess getur fólk á öllum aldri keppt í brennibolta, tekið þátt í götuhlaupi og prófað allskonar greinar eins og borðtennis, petanque, pokavarp og margt fleira. 

 

Allar upplýsingar um mótið má sjá hér:

Landsmót UMFÍ 50+