Göngubók UMFÍ 2025 komin út

Göngubók UMFÍ 2025 er komin út. Í bókinni eru lýsingar á 277 stuttum gönguleiðum fyrir jafnt stutta sem langa fætur, 32 léttar fjallgönguleiðir fyrir alla fjölskylduna og ítarlegar lýsingar á fjölda gönguleiða vítt og breitt um landið.
Í bókinni lýsa jafnframt fjölmargir svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna um allt land uppáhalds gönguleiðum sínum vítt og breitt.
Göngubók UMFÍ hefur frá upphafi notið mikilla vinsælda meðal náttúruunnenda og útivistarfólks og hefur þróast mikið síðan hún kom fyrst út sumarið 2002. Þá voru í henni lýsingar á 144 gönguleiðum. Í nýjustu útgáfunni er að finna 277 fjölbreyttar gönguleiðir.
Upphaf göngubókarinnar má rekja til þess að umhverfisnefnd UMFÍ settist á rökstóla um aldamótin 2000 með það í huga að leita leiða til að efla þekkingu fólks á landi og náttúru Íslands, bæta umgengni og hvetja til aukinnar útivistar.
Frá fyrstu útgáfu hefur bókin verið í sífelldri endurnýjun og endurspeglar sívaxandi áhuga Íslendinga á því að ferðast um sitt eigið land.
Göngubókin þjónar ekki aðeins sem leiðarvísir um gönguleiðir um allt land. Hún er líka hvatning fyrir fólk til að fara af stað og bæta heilsu sína með ýmsum hætti sem fylgja útivist og hreyfingu. Í göngubókinni eru lýsingar á gönguleiðum, fjöldi korta með staðsetningum gönguleiða og ýmis ráð fyrir fólk á öllum aldri. Í göngubókinni er nú sem fyrr lögð áhersla á að gera útivist aðgengilega sem f lestum. Hvatt er til þess að fólk reimi á sig gönguskóna, opni bókina og hafi hana með sér í bakpoka eða jakkavasa í gönguferðunum.
Nú er verið að dreifa Göngubók UMFÍ um allt land. Þú getur nálgast hana í sundlaugum, íþróttahúsum og helstu viðkomustöðum og nælt þér í ókeypis eintak.
Þú getur líka smellt á hlekkinn hér að neðan og gengið með bókina í símanum.
Reimum nú á okkur skóna og höldum af stað út í náttúruna.
Góða ferð!
Þú getur smellt á hlekkinn hér eða forsíðu bókarinnar hér að neðan.