Fara á efnissvæði
19. maí 2025

Guðríður og Jón M. heiðruð

Þau Jón M. Ívarsson og Guðríður Aadnegard voru á meðal þeirra sem sæmdu voru heiðursviðurkenningum forystufólks úr íþróttahreyfingunni á Íþróttaþingi ÍSÍ á föstudag. Jón var kjörinn heiðursfélagi ÍSÍ og Guðríður var sæmd Heiðurskrossi ÍSÍ, sem er æðsta heiðursviðurkenning ÍSÍ. Heiðursfélagarnir höfðu áður hlotið Heiðurskrossinn. 

Fimm einstaklingar voru gerðir að heiðursfélögum og fjórir voru sæmdir með heiðurskrossi.

 

Heiðursfélaginn Jón

Jón var einn fjögurra sem bættust við sem heiðursfélagar ÍSÍ. Hann á að baki fjölbreytt hlutverk innan íþróttahreyfingarinnar, meðal annars sem iðkandi, stjórnarmaður, dómari og leiðtogi. Hann var meðal annars formaður Glímusambands Íslands á árunum 1995 – 2001 og gegndi embætti ritara hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands. Hann hefur verið ómetanlegur við heimilda- og söguskráningu í íþróttahreyfingunni, skráð sögu fjölmargra eininga og góðfúslega gefið svör og leitað svara við ýmsum spurningum sem upp koma í starfinu og grafast þarf fyrir um í eldri heimildum. Hann er jafnframt höfundur Vormanna Íslands, bókar um sögu UMFÍ. 

Jón var sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ árið 2019. 

 

Heiðurskross Guðríðar

Guðríður er formaður Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK) og hefur verið í því embætti frá árinu 2010 eða í 15 ár. Hún var kjörin í varastjórn HSK árið 2000 og varð ritari sambandsins ári síðar. Hún er því búin að vera í leiðtogastarfi hjá HSK í 25 ár. Guðríður var áður formaður Íþróttafélagsins Hamars í Hveragerði um árabil.  

 

Önnur sem voru sæmd heiðurskrossi ÍSÍ

  • Höskuldur Goði Karlsson
  • Dr. Ingimar Jónsson
  • Jón Ásgeir Eyjólfsson

Nýir heiðursfélagar ÍSÍ

  • Birna Björnsdóttir 
  • Guðmundur Pétursson 
  • Jón M. Ívarsson
  • Jón Hjaltalín Magnússon
  • Sigurjón Pétursson 

 

Myndirnar af hópnum tók Arnaldur Haraldsson fyrir ÍSÍ. Hinar eru frá UMFÍ.