Heiðar Mar er nýr framkvæmdastjóri ÍA

„Þetta er gríðarlega spennandi starf. Ég er mikill ÍA-maður og þegar mér var boðið þetta starf þá gat ég ekki sagt nei,“ segir Heiðar Mar Björnsson. Hann hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Íþróttabandalags Akraness (ÍA) og tekur starfinu af Guðmundu Ólafsdóttur. Heiðar er nú einn af tveimur svæðisfulltrúum íþróttahéraðanna á Vesturlandi og kemur til starfa hjá ÍA í byrjun ágúst.
Heiðar er menntaður kvikmyndagerðarmaður með áherslu á framleiðslu kvikmynda og handritaskrif. Heiðar er Skagamaður í húð og hár og æfði knattspyrnu með ÍA upp í 2. flokk, handbolta, körfubolta og spilaði golf og gerðist síðar dómari á vegum Knattspyrnudómarafélags Akraness (KDA). Hann hefur verið í íþróttahreyfingunni á Akranesi frá 6 ára aldri og þekkir mjög vel til starfsins, nú síðast sat hann í stjórn ÍA frá 2022-2025. Heiðar hefur framleitt fjöldann allan af íþróttaefni, bæði í beinum útsendingum ásamt heimildamyndum og þáttaröðum fyrir sjónvarp. og þegar hann flutti aftur heim á Akranes frá Englandi Í lok árs 2015 tók hann þátt í því, með góðum hópi að stofna netrásina ÍATV, sem síðan þá hefur sent út hundruð íþróttaviðburða frá Akranesi í sjálfboðavinnu fyrir hreyfinguna.
Heiðar hefur ásamt öðrum svæðisfulltrúum íþróttahéraðanna um allt land unnið að fjölmörgum verkefnum sem miða að því að efla og styrkja starf íþróttahreyfingarinnar fyrir börn og ungmenni, ásamt almennum störfum er koma að rekstri íþróttahéraða/bandalaga og einnig félaga.
Íþróttir eru sjálfsmynd Skagamanna
Heiðar segir mikið framundan hjá ÍA. Þar á meðal verði nýtt íþróttahús vígt í ágúst. Til marks um umfang ÍA þá eru aðildarfélögin 19 og rúmlega 3.300 iðkanir.
„ÍA og íþróttir eru sjálfsmynd okkar Skagamanna. Íþróttir eru samofnar menningu okkar og við vinnum hér öll saman að því að betrumbæta starfið,“ segir hann.
Heiðar Mar er giftur Söru Hjördísi Blöndal sýningar- og leikmyndahönnuði og eiga þau þrjú börn: Skorra Birni 11 ára, Yrju Blævi 9 ára og Frosta Brimi 7 ára.
Eins og fyrr segir tekur Heiðar Mar við starfi framkvæmdastjóra ÍA af Guðmundu Ólafsdóttur, sem óskað hefur eftir því að láta af störfum. Hún hefur gegnt starfinu í tæp fimm ár. ÍA þakkar henni fyrir vel unnin störf í þágu íþróttastarfs á Akranesi og óskar velfarnaðar í nýjum verkefnum.
Guðmunda á sæti í stjórn UMFÍ og er ÍA einn af sambandsaðilum þess. UMFÍ þakkar henni fyrir samstarfið á þeim vettvangi sem hún hverfur nú frá á Akranesi.
Á myndinni hér að ofan er Heiðar ásamt Gyðu Björk Bergþórsdóttur, formanni ÍA.