Hvað varð um Bermúdaskálina?

Aðalsteinn Jörgensen var í landsliðinu í bridds sem landaði Bermúdaskálinni með eftirminnilegum hætti í október árið 1991. Hann segir það hafa gert liðinu gott að stunda útivist og aðra hreyfingu fyrir mótið.
„Það kom okkur á óvart að vinna. Við vorum búnir að gera ýmislegt öðruvísi í undirbúningi okkar, við gengum á fjöll, hlupum saman og fórum í fótbolta og ýmislegt fleira en að spila. En það styrkti okkur var að gera eitthvað saman í stað þess að spila,“ segir Aðalstein Jörgensen, einn af fjórmenningunum sem lönduðu heimsmeistaratitli í bridds í Yokohama í Japan í október árið 1991.
Þau sem geta rifjað upp atburði sem áttu sér stað fyrir meira en þrjátíu árum muna kannski eftir þeirri gríðarlegu stemningu sem myndaðist í kringum mótið. Fjallað var um gengi liðsins í fjölmiðlum dag og nótt og var heilmikil spenna fyrir því.
Eftirminnilegust er vafalítið hátíðleg mótttaka fyrir liðið í Leifsstöð þar sem Davíð Oddsson, sem þá var forsætisráðherra, tók á móti liðinu ásamt fjölda fólks. Flugvél landsliðsins tafðist reyndar um einn og hálfan klukkutíma, en þegar liðið lenti stakk Davíð kampakátur upp á því að gestir lyftu glösum, briddsveitinni til heiðurs og skálaði fyrir Bermúdaskálinni, verðlaunagripnum eftirsótta sem íslenska liðið kom með heim.
Þetta var fyrsta skiptið sem Íslendingar unnu heimsmeistaratitil í hópíþrótt.
Heilmikill uppgangur varð í bridds á Íslandi eftir að heimsmeistaratitlinum var landað.
Bermúdaskál og Landsmót UMFÍ 50+
Bermúdaskálin bar á góma í tengslum við gerð mótaskrár Landsmóts UMFÍ 50+ sem fram fer í Fjallabyggð um næstu helgi. Í mótaskránni er fjallað stuttlega um hverja af þeim fjórtán greinum sem þar verða í boði.
Bridds er á meðal greina eins og boccía, ringó, skotfimi, stígvélakasts og fjölda annarra.
En hvernig var að taka þátt í heimsmeistaramótinu og hvað varð um Bermúdaskálina?
Aðalsteinn var 32 ára árið 1991 og yngstur í liði íslenska hópsins sem keppti í Japan. Þeir elstu voru að verða fimmtugir, 45 til 47 ára.
Aðalsteinn man vel eftir mótinu, en sterkast í minningunni var forleikurinn og undirbúningurinn, sem var með öðrum hætti en áður.
Liðið komst á mótið í Japan eftir að hafa lent í 4. sæti á Evrópumóti í bridds í Killarney á Írlandi vorið 1991. Rétt fyrir mótið hafði verið ákveðið að fjölga þeim liðum sem gætu unnið sér rétt til að fara til Japan úr tveimur í fjögur.
„Það hjálpaði félagsandanum að gera eitthvað annað saman en að spila,“ segir Aðalsteinn og rifjar upp eitt atvik.
„Einn daginn átti að ganga á Helgafell í Hafnarfirði. Þetta var að vetrarlagi og veðrið var ógeðslegt þennan morgun sem við ætluðum að leggja af stað. Þá var hringt í fyrirliðann, Björn Eysteinsson, og hann spurður hvort hann hefði séð hvernig veðrið væri. Hann sagði svo vera en að við færum á fjallið. Við fórum upp vel gallaðir og komumst upp. Það var svo mikið rok að ég gat ekki verið með gleraugun á mér, þau hefðu fokið af. Jón Baldursson sagði alltaf að þarna hefði Björn dregið okkur upp á Manndrápsfjallið.“
Sex í sveit
En hvað varð um Bermúdaskálina?
Bermúdaskálin er farandbikar sem geymdur var á skrifstofu Bridgesambands Íslands í tvö ár en fór að þeim árum liðnum í faðm Hollendinga, sem unnu heimsmeistaratitilinn árið 1993.
En fleira varð eftir í höndum liðsins en minningarnar.
„Við fengum líka medalíu og hver okkar litla, hnefastóra útgáfu af Bermúdaskálinni,“ segir Aðalsteinn og nær í sína fyrir myndatöku.
Aðalsteinn hefur spilað bridds eftir þetta og er nú orðinn með þeim elstu í landsliðinu.
Hann hefur ekki keppt í bridds á Landsmóti UMFÍ 50+ og situr sömuleiðis hjá nú.
Góð skráning er í greinina. Spilað verður í Menningarhúsinu Tjarnarborg á Ólafsfirði laugardaginn 28. júní. Gert er ráð fyrir hörkukeppni enda mun spennan standa yfir frá klukkan 10:00 og fram að kvöldmat.
Fjórir til sex eru í hverri sveit og verður spilað um silfurstig.
Einn aldursflokkur er í keppninni og kynjaflokkurinn blandaður.
Ekki missa af mótinu!
Í dag er síðasta tækifærið til að skrá sig á Landsmót UMFÍ 50+ sem fram fer í Fjallabyggð um næstu helgi. Fleira verður í boði um helgina. Þar á meðal er matar- og skemmtikvöld, sem haldið verður laugardaginn 28. júní.
Kaupa þarf miða á mótið til að skrá sig í greinar - og til viðbótar sérstakan miða á matar- og skemmtikvöldið.
Allar upplýsingar og skráning hér
Hér að neðan má sjá mynd af þátttakendum í bridds á Landsmóti UMFÍ 50+ í gegnum tíðina auk afrits af baksíðu Morgunblaðsins af heimkomu landsliðsins í október árið 1991 þegar það kom heim með Bermúdaskálina.



