05. júní 2025
Jóhann og Willum hittust í fyrsta sinn eftir forsetakjör

Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Olympíusambands Íslands (ÍSÍ), og Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, settust niður til fundar og ræddu um samstarf samtakanna. Þetta var fyrsti fundur Willums með forsvarsfólki UMFÍ eftir að hann var kjörinn forseti ÍSÍ á íþróttaþingi á dögunum.
Á meðal umræðuefna voru tillögur sem samþykktar hafa verið á bæði þingum ÍSÍ og UMFÍ og snúa að báðum samtökunum.
Sömuleiðis var rætt um samstarfið út frá ýmsum hliðum. Það er mikið og tengist fjölmörgum verkefnum á borð við svæðastöðvar íþróttahéraðanna, Allir með, samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og Íþróttasambandi fatlaðra (ÍF), Sýnum karakter og margt fleira.