Fara á efnissvæði
20. maí 2025

Kamilla og Tómas kynntust fjölbreyttu starfi UMFÍ

„Þetta hefur verið yndislegt. Við vitum mun meira nú en áður hvað UMFÍ gerir, þetta er svo fjölbreytt!“ segir Kamilla Brynjarsdóttir, nemandi á öðru ári í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík. Hún var í þrjár vikur í vettvangsnámi í þjónustumiðstöð UMFÍ ásamt Tómasi Orra Róbertssyni, sem líka er í náminu.

Þau Kamilla og Tómas Orri unnu að ýmsum verkefnum. Á meðal þess helsta var kortlagning á niðurgreiðslu æfingagjalda hjá íþróttafélögum og kostnað íþróttafélaga við niðurfellinguna. Þau settu upp alla skráningu fyrir Landsmót UMFÍ 50+ og sóttu ýmsa viðburði, m.a. opnun Afreksmiðstöðvar, Norðurlandamót í boccía, aðalfund Æskulýðsvettvangsins og fleira. 

Nokkrir nemendur voru í vettvangsnámi á sama tíma hjá Íþrótta- og Ólympíusambandinu (ÍSÍ), Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ) og Körfuknattleikssambandi Íslands (KKÍ). 

Næsta verkefni þeirra Tómasar og Kamillu er að kynna heimsókn sína til UMFÍ fyrir samnemendum í HR og halda svo í sumarfrí. 

 

Nýjungar í starfi með Háskólanum í Reykjavík

UMFÍ og íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík bjóða nú í fyrsta sinn upp á tvær kostaðar stöður í meistaranámi sem snúa að áhersluþáttum UMFÍ. Önnur er meistaranám í íþróttavísindum og kennslu og hin er í íþróttavísindum og frammistöðugreiningu.

Umsóknarfrestur fyrir báðar stöður er til 15. maí 2025. 

Báðar stöðurnar eru kostaðar af Háskólanum í Reykjavík og Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) og mun viðkomandi nemandi ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur. Umsóknarfrestur er til 15. maí næstkomandi og mun nemandi hefja nám strax á haustönn. 

Meira á Facebook-síðu íþróttafræðideildar HR.

 

Ítarlegri upplýsingar um stöðurnar

Meistaranám í íþróttavísindum og kennslu

Námsstaða í meistaranámi í íþróttavísindum og kennslu (Med) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. 

Meistaranemi undir handleiðslu akademísks starfsmanns HR mun vinna kennsluefni fyrir UMFÍ.

Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi: 

  • Að gera þarfagreiningu og yfirgripsmikið fræðsluefni fyrir sjálfboðaliða. Þarfagreiningin og gerð fræðsluefnisins yrði hluti af lokanámskeiðinu. Námsefnisgerð til Med. - gráðu í íþróttavísindum og kennslu. Markmið þarfagreiningarinnar er að greina þarfir menntunar til sjálfboðaliða innan hreyfingarinnar, rýna núverandi kennsluefni og útbúa framtíðarkennsluefni fyrir hreyfinguna.
  • Starfsmenn HR og meistaranemandi munu kynna niðurstöður verkefnisins fyrir þeim aðilum sem UMFÍ óskar eftir.  
  • Nemandi leitar eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við UMFÍ og veita þeim aðgang að verkefnum sínum.
  • Nemandi skuldbindur sig til þess að ljúka 10 ECTS eininga verknámi hjá UMFÍ á tímabilinu. Verknámið er ólaunað og munu verkefnin verða ákveðin í samráði við nemandann.
  • Nemandi skuldbindur sig til að halda eðlilegri námsframvindu og mæta samviskusamlega í kennslustundir, ásamt því að taka þátt í kynningarstarfi á vegum HR sé þess óskað. Dæmi um slíkt væri viðvera á Háskóladeginum. 

Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á tölvupósti til: hafrunkr@ru.is og hjaltio@ru.is
 
Meistaranám í íþróttavísindum og frammistöðugreiningu

Laus er til umsóknar staða í meistaranámi í íþróttavísindum og frammistöðugreiningu (MSc) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Sérstaklega er leitað eftir nemendum sem hafa sterkan grunn í greiningu gagna. 

Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi: 

  • Að gera yfirgripsmikla rannsókn sem snýr að greiningu á fyrirliggjandi gögnum í eigu UMFÍ. Rannsóknin yrði hluti af meistararitgerð til Msc. gráðu í íþróttavísindum og frammistöðugreiningu. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvernig þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi hefur þróast undanfarin ár á Íslandi, ásamt því að kanna hvort spá megi fyrir um þætti sem hafa áhrif á brottfall úr skipulögðu íþróttastarfi. Akademískur starfsmaður HR mun verða ábyrgðarmaður rannsóknar og leiðbeinandi meistaranemans. Rannsóknin verður gerð í nánu samstarfi við UMFÍ. 
  • Starfsmenn HR og meistaranemandi munu kynna niðurstöður ritgerðarinnar fyrir þeim aðilum sem UMFÍ myndi óska.
  • Nemandi leitast eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við UMFÍ og veita þeim aðgang að verkefnum sínum.
  • Nemandi skuldbindur sig til þess að ljúka 10 ECTS eininga verknámi hjá UMFÍ á tímabilinu.

 

Verknámið er ólaunað og munu verkefnin verða ákveðin í samráði við nemandann. 

Nemandi skuldbindur sig til að halda eðililegri námsframvindu og mæta samviskusamlega í kennslustundir, ásamt því að taka þátt í kynningarstarfi á vegum HR sé þess óskað. Dæmi um slíkt væri viðvera á Háskóladeginum. 

Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á tölvupósti til: hafrunkr@ru.is og hjaltio@ru.is