Fara á efnissvæði
05. mars 2026

Konur í íþróttum

Frumsýning fræðsluefnis

Frumsýning á nýju fræðsluefni um konur í íþróttum fer fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal föstudaginn 6. mars klukkan 16:30. Af því tilefni verður haldið útgáfuhóf. 70 manns hafa boðað komu sína sem er stórkostlegur fjöldi.

Viðburðurinn fer fram á 3. hæð Íþróttamiðstöðvarinnar við Engjaveg 6. Dagskráin hefst á frumsýningu fræðslumyndbanda og stuttri kynningu á verkefninu Konur í íþróttum. Að því loknu verða léttar veitingar og tækifæri til samtals og tengslamyndunar.

Um verkefnið

Konur í íþróttum er fræðslumyndbandsröð um og fyrir íþróttakonur. Verkefnið er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík (HR), Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ), Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ).

Í myndböndunum fjalla sérfræðingar á sínu sviði um þá þætti sem einkenna íþróttakonur á mismunandi æviskeiðum. Markmið verkefnisins er að efla þekkingu og fræðslu, styðja við heilbrigði íþróttakvenna, hámarka frammistöðu þeirra og draga úr líkum á meiðslum.

Fræðsluefnið samanstendur af 44 myndböndum sem eru annars vegar miðuð að yngri íþróttakonum og hins vegar eldri íþróttakonum, þjálfurum, foreldrum og öðrum sem koma að íþróttastarfi.