Fara á efnissvæði
05. mars 2026

Minnum á fundi um stefnumótun

Við höldum áfram vinnunni við sameiginlega stefnumótun íþróttahreyfingarinnar um allt land. Nú fara í gang fundir um allt land, sem marka næstu skref í vinnunni. Fyrsti fundurinn verður á Austurlandi í dag, fimmtudaginn 5. mars á milli klukkan 19:00 - 21:00 og fer hann fram í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. 

Yfirlit yfir fundarstaði og tímasetningar má sjá hér fyrir neðan. Þar má líka finna hlekk á skráningarform fyrir fundina.

Við biðja alla áhugasama sem sjá sér fært að taka þátt í fundunum að skrá sig á viðeigandi fund með nafni og netfangi. Athugið að hver fundur gæti staðið yfir í eina og hálfa klukkustund. Það er reyndar vel í lagt og ekki víst að fundirnir verði svo langir.

Tökum öll þátt í vinnunni!

Skráning hér:

Smella hér til að skrá á fund

 

Fundarstaðir og fundartímar: 

  • Austurland - Fim. 5. mars - kl. 19:00 – 21:00 - Sláturhúsið Egilssstöðum.
  • Höfuðborgarsvæðið - Mán. 9. mars - kl. 15:00 – 17:00 - Íþróttamiðstöðin Laugardal
  • Höfuðborgarsvæðið - Mið. 11. mars - kl. 17:00 – 19:00 - Íþróttamiðstöðin Laugardal
  • Suðurnes - Mán. 16. mars - kl. 17:00 – 19:00 - Íþróttahúsinu Sunnubraut í Reykjanesbæ.
  • Suðurland - Þri. 17. mars - kl. 17:00 – 19:00 - Stracta Hótel á Hellu.
  • Norðurland vestra - Mán. 23. mars - kl. 17:00 – 19:00 - Fjölbrautaskóli NV á Sauðarkróki.
  • Norðurland eystra - Þri. 24. mars - kl. 16:30 – 18:30 - Íþróttahöllin á Akureyri.
  • Vesturland - Fim. 9. apríl - kl. 18:00 – 20:00 - Hótel Vesturland í Borgarnesi.
  • Vestfirðir - Lau. 11. apríl - kl. 14:00 – 16:00 - Menntaskólinn á Ísafirði.

Smelltu hér að neðan til þess að skrá þig til leiks:

Skrá hér