Fara á efnissvæði
26. júní 2025

Mótaskrá komin út

Mótaskrá Landsmóts UMFÍ 50+ í Fjallabyggð er komin út. Þetta er skráin sem þátttakendur og gestir mótsins geta haft gagn af að hafa í vasanum og símanum meðan á móti stendur. Í mótsskránni er dagskrá mótsins, skemmtilegar upplýsingar um allar greinar, myndir frá fyrri mótum, helstu spurningum svarað og ýmislegt fleira sem boðið er upp á í Fjallabyggð.

Þátttakendur fá prentaða útgáfu mótaskrárinnar afhenta í þjónustumiðstöðvum mótsins á Siglufirði og Ólafsfirði. Miðstöðin opnar á Ólafsfirði fimmtudaginn 26. júní klukkan 17:00 og verður hún opin til klukkan 22:00. Þjónustumiðstöðin opnar svo aftur klukkan 8:00 á föstudag og á Ólafsfirði klukkan 17:00.

Í mótaskránni svara Gunnar Þór Gestsson, varaformaður UMFÍ, Óskar Þórðarson, formaður UÍF, og Þórir Hákonarson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, ýmsum spurningum og segja frá mótinu í sveitarfélaginu. 

Landsmót UMFÍ 50+ hefst með keppni í boccía í íþróttahúsinu á Siglufirði á föstudagsmorgun klukkan 9:00. Gert er ráð fyrir því að keppnin standi til klukkan 18:00.

UMFÍ heldur mótið ásamt Ungmenna- og íþróttasambandi Fjallabyggðar (UÍF) og sveitarfélaginu Fjallabyggð. 

 

Hér er hægt að nálgast mótaskránna alla:

Mótaskrá Landsmóts UMFÍ 50+ 2025