Fara á efnissvæði
10. júní 2025

Nemendum fjölgar í Skólabúðum UMFÍ í haust

Skólaárinu er nú lokið í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði og fóru síðustu nemendurnir sem þar dvöldu til síns heima í þarsíðustu viku. Þetta voru nemendur frá Borgarskóla á Húsavík, Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi og Waldorfsskóla í Reykjavík. 

Nemendur sem dvelja í Skólabúðum UMFÍ eru í 7. bekk úr fjölmörgum grunnskólum landsins, kennarar þeirra og umsjónarfólk. Mikil ánægja hefur verið með dvölina í Skólabúðunum og breiðist orðspor þeirra út víða. 

Fyrir síðasta skólaár dvöldu um 3.200 nemendur í 7. bekk í búðunum á hverju misseri. Þetta skólaárið voru nemendurnir 3.408 talsins. 

Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður Skólabúða UMFÍ, segir gríðarlega góða aðsókn í búðirnar fyrir næsta skólaár, þ.e. næsta haust og vorið 2026. 

„Allar vikurnar eru fullbókaðar á skólaárinu og gaman að segja frá því að nýir skólar bætast við í hóp þeirra sem senda nemendur á Reyki,“ segir hann en níu skólar munu bætast við og nemendur þeirra að koma í fyrsta sinn. 

„Við hlökkum til að taka á móti nýjum nemendum,“ segir Sigurður en í Skólabúðum UMFÍ fá nemendur tækifæri til þess að efla leiðtogahæfni og sjálfsmynd sína og vinna með styrkleika sína og margt fleira.

 

Samdi lag um Skólabúðirnar

UMFÍ tók við rekstri skólabúðanna á Reykjum haustið 2022 og hefur síðan þá, í samvinnu við sveitarfélagið Húnaþing vestra, unnið að miklum endurbótum á húsakosti og nærri því öllu innanstokks. 
Á meðal þeirra sem starfa í Skólabúðum UMFÍ er tónlistarmaðurinn og leiðbeinandinn Ingimar Oddsson. Hann samdi fyrir nokkru lag fyrir búðirnar. Þegar nemendur syngja lagið saman kynnast þeir nemendum úr öðrum skólum.

 

Lagið heitir Það er gott og má heyra á Spotify: 

Hlusta á lagið

Ítarlegri upplýsingar um Skólabúðir UMFÍ má lesa hér:

Meira um Skólabúðir UMFÍ

Viðtal við Ingimar um lagið er hægt að lesa í Skinfaxa, tímariti UMFÍ:

Lesa viðtal við Ingimar