Fara á efnissvæði
22. ágúst 2025

Opið fyrir umsóknir um styrki í lýðháskóla

Ertu á leið í lýðháskóla í Danmörku í haust? Við erum búin að opna fyrir umsóknir um styrki fyrir haustönn. Opið er fyrir umsóknir til 26. september næstkomandi.

Markmið með styrkveitingunni er að gefa ungu fólki tækifæri til að víkka sjóndeildarhring sinn. Einnig tækifæri til að kynnast nýju tungumáli og menningu, auka færni sína og þekkingu á völdu sviði í gegnum óformlegt nám og styrkja leiðtogatogahæfileika sína um leið.

Umsóknarfrestir eru tvisvar sinnum á ári. Á haustin er opið fyrir umsóknir fyrir haustönn og heilt skólaár. Um áramót er opið fyrir umsóknir fyrir vorönn. 

 

Hvað geri ég ef ég fæ styrk?

Við bendum á að ef umsækjandi hlýtur styrk fyrir einni önn þarf hann að skila tveimur verkefnum til UMFÍ. Ef umsækjandi hlýtur styrk fyrir heilu skólaári (40+ vikur) þarf hann að skila inn þremur verkefnum til UMFÍ.

Fyrri verkefnaskil fela í sér verkefni á meðan námsdvöl stendur. Styrkþegi getur valið að skila inn texta eða stuttu myndbandi sem inniheldur upplifun eða reynslu af náminu. Skilafrestur er 11. nóvember 2025.

Seinni verkefnaskil fela í sér stutta lokaskýrslu sem inniheldur lærdóm af náminu. Jafnframt þarf að fylgja með staðfesting á námsdvöl frá skólanum. Skilafrestur er 20. janúar 2026.

Þeir styrkþegar sem hljóta styrk fyrir heilu skólaári (40+ vikur) þurfa að auki við fyrri tvö verkefnin að skila inn stuttri kynningu um skólann sinn. Skilafrestur 24. febrúar 2026.

 

Hvernig sæki ég um styrk?
  • Ef þú ert að fara í nám yfir haustönn eða yfir heilt skólaár þá sækir þú um styrk í ágúst. Opnað er fyrir umsóknir um miðjan ágúst og er umsóknarfrestur til um miðjan september.
  • Ef þú ert að fara í nám á vorönn þá sækir þú um styrk í desember. Opnað er fyrir umsóknir í byrjun desember og er umsóknarfrestur til um miðjan janúar.
  • Eftir að auglýstur umsóknarfrestur er liðinn fá umsækjendur svar í tölvupósti. Svar berst nokkrum dögum eftir að lokað er fyrir umsóknir. 

 

Meira um styrkina hér