Prikhestar eru heita nýja greinin

Allir geta verið með á prikhestum! Þær Berglind Ýr og mæðgurnar Guðný María Waage og Arnheiður María Hermannsdóttir Waage kíktu í heimsókn í þjónustumiðstöð UMFÍ í vikunni með prikhestana Brownies og Snjó og kynntu greinina. Arnheiður og Guðný eru frá Húsavík og stóðu fyrir fyrsta viðburðinum með prikhesta -sem uppá ensku heita Hobby Horse eða hobbíhestar - á Íslandi á Húsavík í mars á þessu ári.
Prikhestar hafa notið vinsælda á hinum Norðurlöndunum og þykja með eindæmum skemmtilegt sport fyrir börn og ungmenni – og reyndar öll sem áhuga hafa.
Benda má á að á laugardag standa þær fyrir kynningu og fræðslu fyrir fjölskyldum um hobbíhesta í samstarfi við Æfingastöðina og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra við Háaleitisbraut í Reykjavík. Þarna fá gestir tækifæri til að prófa, læra, leika sér og kynnast greininni.
Nánar um viðburðinn
Hobbíhestar hafa vakið athygli á samfélagsmiðlum undanfarin ár. Fjölskyldur fá nú einstakt tækifæri til að prófa, læra og leika sér saman í Æfingastöðinni á kynningu og opinni æfingu í hobbíhestreiðum.
Hvað eru hobbíhestar?
Þátttakendur fara í gegnum ýmsar hindranir og þrautir á hobbíhesti..
Fyrir hverja?
:: Fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur sem vilja prófa eitthvað nýtt og skemmtilegt.
:: Boðið verður upp á möguleika í hobbíhestum í hjólastól.
Við munum:
:: Kynnast hobbíhestum og hvaðan hugmyndin kemur.
:: Sýna hvernig æfingar og keppnir fara fram.
:: Bjóða upp sýnikennslu og opna æfingu þar sem allir fá tækifæri til að prófa.
Umsjón er í höndum mæðgnana Guðnýjar Maríu Waage og Arnheiðar Maríu á hestunum Snjó og Brownie og Berglindar Ýr Karlsdóttur og Dóru á hestinum Gauki. Á staðnum verða þjálfarar frá Æfingastöðinni þátttakendum til aðstoðar.
Hagnýtar upplýsingar:
:: Gott er að mæta í þægilegum klæðnaði til hreyfingar, íþróttaskór eða berfætt
:: Hobbíhestar eru á staðnum en við hvetjum þau sem eiga að koma með sína hesta
:: Boðið veriður upp á létta hressingu að æfingu lokinni
Öll velkomin - frítt inn!
Hver og hvenær:
Laugadagur 31. maí kl. 13:00 – 15:00
Æfingastöðin, Háaleitisbraut 13
