Samskiptaráðgjafar kynna Viðbragðsáætlun
Samskiptaráðgjafar í íþrótta- og æskulýðsstarfi bjóðast til að koma á ársþing og fundi íþróttahéraða, íþrótta- og ungmennafélaga og sérsambanda og kynna Viðbragðsáætlun fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf og leiðbeina um það hvernig hún nýtist sem best.
Kynningin tekur um 15 mínútur með fyrirspurnum.
Nú þegar hafa nokkur sérsambönd og félög kosið að fara þessa leið og telja það styrk fyrir starfsemina að iðkendur séu meðvitaðir um hvernig staðið er að þeim málum sem koma upp innan félagsins ásamt því að vísa málum til samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.
Samskiptaráðgjafi íþrótta – og æskulýðsstarfs minnir á að á Íþróttaþingi ÍSÍ í maí árið 2025 var eftirfarandi samþykkt:
„Tillaga um að samþykkja að starfa eftir viðbragðsáætlun samskiptaráðgjafa Íþróttaþing haldið 16. og 17. maí 2025 hvetur sambandsaðila og íþróttafélög innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands til að samþykkja að starfa eftir og kynna Viðbragðsáætlun Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs rækilega innan sinna raða og sjá til þess að hún sé aðgengileg öllum sem taka þátt í íþróttastarfi.“
Samskiptaráðgjafar óska eftir því að kynning verði bókuð með skeyti á netfangið: samskiptaradgjafi@samskiptaradgjafi.is.