Fara á efnissvæði
26. maí 2025

Sandra Finnsdóttir: Geggjað íþróttapartý

„Við erum öll rosalega spennt fyrir mótinu, líka við sem eigum enn svolítið í fimmtugt af því að það er svo margt í boði fyrir fólk á öllum aldri,“ segir Sandra Finnsdóttir sem á sæti í viðburðastjórn Landsmóts UMFÍ 50+. Undirbúningur mótsins er í fullum gangi enda verður það haldið eftir rúman mánuð í Fjallabyggð, það er að segja dagana 27. – 29. júní.

Viðburðir landsmótsins verða haldnir bæði á Siglufirði og Ólafsfirði. Það hefst á Siglufirði og verða greinar þar fram að hádegi þegar þær færast í meiri mæli yfir á Ólafsfjörð.

Mótið hefst með keppni í boccía í íþróttahúsinu á Siglufirði á föstudeginum klukkan 9:00 um morguninn. Síðar um daginn verður blásið til götuhlaups og á sama tíma verður keppt í ringói. Að lokinni keppni í ringói verður mótið sett með formlegum hætti í íþróttahúsi Siglufjarðar.

 

Rútuferðir á matar- og skemmtikvöld

Matar- og skemmtikvöld nýtur mikilla vinsælda á hverju móti. Að þessu sinni fer það fram á Kaffi Rauðku á Siglufirði á laugardagskvöldinu. Boðið verður upp á gómsætan lambarétt og með því líka heljarinnar stuði og góðri stemningu sem tónhresst tónlistarfólk úr Fjallabyggð mun standa fyrir.

Boðið verður upp á rútuferðir frá Ólafsfirði á matarkvöldið á Siglufirði svo allir verði með og til baka aftur.

„Við viljum lágmarka vesenið og bjóða upp á mikið fjör,“ segir Sandra sem mun hafa í nægu að snúast alla mótahelgina. Hún hefur marga hatta og mörg hlutverk.

Mótsgjald á Landsmót UMFÍ 50+ er 5.500 krónur. Kaupa þarf sérstakan miða á matar- og skemmtikvöldið. Sú skemmtun kostar 5.900.

Athugið að skráning fer fram á sérstakri skráningarsíðu á umfi.is

Kaupa miða á mót og matar- og skemmtikvöld

 

Skottast um í síldardressi

Sandra er gönguskíðakennari, kirkjuvörður á Siglufirði og síldarstúlka á sýningum um síldarárin fyrir ferðamenn sem koma til Siglufjarðar og vilja upplifa tímann þegar silfur hafsins flæddi um sjó og land.

En eiga mótsgestir von á að sjá Söndru með síld í hendi?

„Jú reyndar. Það er góður möguleiki á að ég hendi mér í síldardressið og bregði á síldartvist við setningu mótsins. En ég verð á fullu alla helgina, sérstaklega á laugardeginum. Auk þess að hlaupa á milli íþróttagreina og tengdra viðburða þá eru fjórar síldarsýningar bókaðar fyrir erlenda ferðamenn á Síldarminjasafninu,“ segir hún.

Sandra hvetur fólk á öllum aldri til að koma á Landsmót UMFÍ 50+ í Fjallabyggð enda margt í boði fyrir fólk á ýmsum aldri. Þar á meðal er götuhlaup á Siglufirði á föstudeginum. Eftir hádegi getur fólk sem áhuga hefur á alls konar íþróttum komið á íþróttasvæði Ólafsfirðinga og prófað ýmsar greinar.

Hægt verður að prófa petanque, spila frisbígolf, hlaupaskotfimi, spila blak, prófa pokavarp, krullu á risabraut, bogfimi og margt fleira. Auk þessa geta allir sem vilja skellt sér í heilsufarsskoðun á milli klukkan 12-13 í íþróttahúsinu á Siglufirði og á milli klukkan 14-15 á Ólafsfirði.

Á milli klukkan 16-18 verður svo brenniboltamót fyrir fólk á öllum aldri. Fyrir kvöldmat verður hægt að leika sér með LED-badmintoni í íþróttahúsinu á Ólafsfirði.

„Það er slatti í boði fyrir alla. Þetta verður geggjað íþróttapartý!“ segir Sandra að lokum.

 

Stuðmót fyrir alla

Opið er fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50+. Þú getur lesið meira um greinarnar og skoðað dagskrána hér. Athugið að eftir að fólk skráir sig á mótið og greiðir þátttökugjald kemur tölvuskeyti til viðkomandi og er þar hlekkur til að skrá sig í greinar.

Greinar mótsins fyrir 50 ára og eldri:

  • Badminton
  • Boccía
  • Bridds
  • Frjálsar íþróttir
  • Golf
  • Pílukast
  • Pokavarp
  • Pútt
  • Pönnukökubakstur
  • Ringó
  • Skotfimi
  • Stígvélakast
  • Sund

Opna greinar fyrir alla aldurshópa:

  • Brennibolti (mót fyrir alla aldurshópa)
  • Götuhlaup
  • Krulla
  • Petanque
  • Frisbígolf
  • Minigolf
  • Ringó
  • Hlaupaskotfimi (biathlon)
  • Blak
  • Bogfimi
  • LED badminton
  • Sundleikfimi

Skoða dagskrá og greinar