Fara á efnissvæði
23. maí 2025

Sigurður er nýr formaður HSV

„Ég er mjög brattur, frétti að staðan væri laus og ákvað að hoppa út í djúpu laugina. Ég hef notið góðs af íþróttum síðan ég var barn og vil sjá sem flest njóta sín í íþróttastarfi,“ segir Sigurður Gunnar Þorsteinsson, sem tók við sem formaður Héraðssambands Vestfirðinga (HSV) á ársþingi sambandsins, sem fram fór á Suðureyri við Súgandafjörð í gærkvöldi.

Þingið þótti í lengri kantinum, það hófst klukkan 17:00 en lauk ekki fyrr en um hálf ellefu um kvöldið. 

Sigurður Gunnar tók við formennsku sambandsins af Sigurði Hreinssyni, sem einnig gaf kost á sér áfram en varð undir í kosningu.

Sigurður Gunnar á að baki glæstan feril með körfuknattleiksliðum bæði hér á landi og sem atvinnumaður erlendis og leikið með landsliðinu. Hann hefur spilað fyrir ÍR og Hött, varð Íslandsmeistari með liði Keflavíkur, tvívegis Íslandsmeistari með Grindavík, bikarmeistari með Grindavík og landaði Íslandsmeistaratitli þegar Tindastól náði þeim áfanga í fyrsta sinn fyrir tveimur árum. Hann hefur líka leikið í Grikklandi og Svíþjóð. Hann lagði körfuboltaskóna á hilluna á síðasta tímbili og lætur nú nægja að þjálfa barnungan son sinn í boltanum.

Sigurður hefur hvorki setið í stjórn félags áður né sinnt formlegum félagsstörfum en ákveðið að gefa kost á sér því oftar en ekki hefur reynst þrautin þyngri að finna fólk í stjórn HSV í gegnum árin. Það var reyndar raunin ekki nú. 

 

Nýtt fólk í stjórn

Töluverð breyting varð á stjórn HSV. Af fyrri stjórn sitja Hafsteinn Már Andersen og Magnús Þór Bjarnason áfram. Kristinn Ísak Arnarsson og Guðbjörg Ebba Högnadóttir voru kjörin í aðalstjórn til tveggja ára. Heiðrún Tryggvadóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir og Árni Freyr Elíasson voru kjörin í varastjórn til eins árs. 

Guðmunda Ólafsdóttir var fulltrúi UMFÍ á þinginu en aðrir gestir voru þær Birna Hannesdóttir og Guðbjörg Ebba Högnadóttir, svæðisfulltrúar á Vestfjörðum. Guðbjörg Ebba er reyndar á förum í sitt fyrra starf og hefur Helgi Dan Stefánsson verið ráðinn í hennar stað. Helgi sat fundinn sömuleiðis ásamt þeim Hönnu Cörlu Jóhannsdóttur, verkefnastjóra svæðisstöðvanna, og Hansínu Þóru Gunnarsdóttur, sem er annar tveggja svæðisfulltrúa íþróttahéraðanna á höfuðborgarsvæðinu.

Daníel Jakobsson var fulltrúi ÍSÍ á þinginu.

 

Svava, Einar og Halldór heiðruð

Guðmunda veitti Svövu Rán Valgeirsdóttur starfsmerki UMFÍ. Svava er formaður Íþróttafélagsins Stefnis á Suðureyri og hefur verið virk í starfi félagsins í fjöldamörg ár. Þar af hefur hún verið formaður Stefnis frá árinu 2006.

Silfurmerki HSV hlutu Einar Halldórsson fyrir ómetanlegt framlag hans til handboltadeildar Knattspyrnufélagsins Harðar og íþróttahreyfingarinnar í heild sinni ásamt Halldóri Karli Valssyni fyrir óeigingjörn störf sín fyrir ýmis íþróttafélög um árabil.

 

Ársskýrsla HSV er kominn á heimasíðu HSV, en í henni má finna býsna margt um íþróttalíf á starfssvæði HSV.