Fara á efnissvæði
09. apríl 2026

Sigurður Óskar sæmdur Gullmerki UMFÍ

„Þetta var ágætis mæting og tókst vel til fyrir fyrsta þing hjá mér,“ segir Bjarni Malmquist Jónsson, formaður Ungmennasambandsins Úlfljóts (USÚ), en 93. þing sambandsins fór fram í félagsheimili Hestamannafélagsins Hornfirðings á þriðjudag. 

Á þingið mættu 34 fulltrúar aðildarfélaga USÚ af þeim 44 sem rétt áttu til þingsetu. Fulltrúar frá sjö af níu félögum innan USÚ sóttu þingið.

Fram kom áhugi á að endurvekja sýslumót sem haldin voru á milli USÚ og Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu (USVS) sem haldin voru á árum áður. 

Ragnheiður Högnadóttir var gestur þingsins fyrir hönd UMFÍ. Hún hélt ávarp og fjallaði um fjallaði þar um stefnumótun ÍSÍ og UMFÍ, mikilvægi fyrirtækjanna Íslenskrar getspár og Íslenskra getrauna, svæðisstöðvar íþróttahéraðanna og þá sjóði sem hægt er að sækja styrki í frá UMFÍ.

Ragnheiður lauk máli sínu á því að framkvæmdastjórn UMFÍ hafi ákveðið að heiðra Sigurð Óskar Jónsson, fráfarandi gjaldkera USÚ til 15 ára, með gullmerki UMFÍ. Sigurður hefur um árabil verið sjálfboðaliði í þágu ungmennafélagshreyfingarinnar, setið bæði í stjórn USÚ og UMFÍ. Fram kemur í umfjöllun um þingið hjá USÚ, að eftir því sem næst verður komist er þetta í fyrsta skipti sem einhver sem starfar innan USÚ hlýtur gullmerki UMFÍ.

Sigurður Óskar þakkaði fyrir sig og sagði vinnuna yfirleitt hafa verið skemmtilega, fyrir utan kannski einn fund. 

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, komst ekki á þingið en sendi rafræna kveðju. Þar fjallaði hann meðal annars um kraftinn sem býr á sambandssvæði USÚ, m.a. hjá Sindra og Vísi, áskoranir varðandi æfingar og keppni og langar vegalengdir sem iðkendur þurfa að fara, stefnumótun íþróttahreyfingarinnar og ýmislegt fleira. 

Bjarni og Margrét Kristinsdóttir, ritari USÚ, voru bæði endurkjörin í stjórn. Áðurnefndur Sigurður Óskar gaf ekki kost á sér áfram og var Sunna Jónsdóttir kom inn í hans stað. Á stuttum stjórnarfundi eftir þingið var ákveðið að Bjarni héldi áfram sem formaður, Margrét yrði gjaldkeri og Sunna tæki við af henni sem ritari. 

Sömu varamenn sitja áfram. Hannes Halldórsson frá ungmennafélaginu Mána, og Guðbjörg Guðlaugsdóttir frá Sindra gáfu kost á sér áfram og hlutu kosningu. Skoðunarmenn reikninga voru endurkjörnar Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir og Halldóra Katrín Guðmundsdóttir. Þær voru einnig kosnar í kjörnefnd fyrir næsta þing, auk Halldóru Bergljótar Jónsdóttur. Kristján Sigurður Guðnason er til vara.

Undir liðnum önnur mál kvaddi Bjarni sér hljóðs og viðraði hugmyndir um að sækja um að halda Landsmót UMFÍ 50+ og möguleika USÚ til að halda aftur Unglingalandsmót UMFÍ. Í tengslum við það þurfi að huga að og ræða við sveitarfélagið um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Höfn.

Jóhanna Íris Ingólfsdóttir og Rebekka Rán Egilsdóttir, svæðisfulltrúar á Austurlandi, sátu þingið og sögðu frá störfum sínum. Þær hvöttu jafnframt þingfulltrúa til að leita til sín ef þær gætu mögulega hjálpað þeim með eitthvað.

 

Heimasíða USÚ