Fara á efnissvæði
16. mars 2026

Sindri Jens er nýr formaður UMF Þróttar

Sindri Jens Freysson er ný formaður aðalstjórnar Ungmennafélagsins Þróttar í Vogum. Aðalfundur félagsins var um helgina. Sindri Sindri Jens einn í framboði og tekur hann við af Berglindi Petru Gunnarsdóttur, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Berglind lét þó skýrt í ljós að hún væri hvergi nærri hætt störfum fyrir félagið og þakkaði öllum fyrir gott samstarf á sínum formannstíma.

Fram kemur í frétt um málið frá Þrótti að Sindri býr ásamt Huldu sinni og þremur börnum þeirra í Hafnargötu 28. Skemmtileg tilviljun er að húsið var á sínum tíma byggt af Reyni Brynjólfssyni, fyrsta og eina félagsmanni UMFÞ sem hlotið hefur gullmerki Þróttar. Reynir bjó þar í áratugi eða þar til börn hans voru orðin uppkomin.

Sindri starfar sem þjónustustjóri hjá Fagerberg og er menntaður mekatróník tæknifræðingur.

Í ávarpi á aðalfundinum þakkaði Sindri fyrir traustið og sagðist hlakka til komandi verkefna og samstarfs við félagsfólk Þróttar. Hann verður sem fyrr í félagskaffi Þróttar í fyrramálið þar sem félagsmenn geta komið við og óskað nýkjörnum formanni til hamingju.

Á myndinni sem hér fylgir er Sindri (til vinstri) ásamt Gunnari Jóhannessyni, formanni Íþróttabandalags Suðurnesja, sem var gestur fundarins. Ungmennafélagið Þróttur var sambandsaðili UMFÍ þar til Íþróttabandalag Suðurnesja (ÍS) fékk aðild að UMFÍ. Þróttur er aðildarfélag ÍS.