Skítugasta hlaup ársins handan við hornið

Drullu- og hindrunarhlaup UMFÍ og Krónunnar er drulluskemmtilegt hlaup fyrir alls konar fólk, fyrir fjölskylduna, vinahópa og frænku- og frændgarðinn, saumaklúbba og vinnufélaga sem vilja vinna saman að því að komast í mark í skítugasta hlaupi ársins.
Viðburðurinn er samstarfsverkefni UMFÍ, Krónunnar og Ungmennafélagsins Aftureldingar. Hlaupið fer fram laugardaginn 16. ágúst við íþróttamiðstöðina í Varmá í Mosfellsbæ.
Veðurspáin er hins vegar ekki almennt góð fyrir sólardýrkendur. Hún er hins vegar frábær fyrir þátttakendur í Drulluhlaupinu, rigning og 5 m/s í hádeginu.
Leiðin
Hlaupaleiðin er drulluskemmtileg og krefjandi. Hringurinn er 3,5 km langur með fjölda hindrana sem þarf að yfirstíga. Fjölskyldur hlaupa saman og hjálpast að við að komast í gegnum hindranirnar eða leysa saman þrautirnar. Allir 8 ára og eldri ættu að komast í gegnum brautina með aðstoð foreldra og/eða forráðarmanna.
Tíu einstaklingar verða ræstir út með 2 mínútna millibili frá kl. 10:00 - 12:00. Við skráningu fá þátttakendur úthlutuðum tíma.
Rás- og endamark er staðsett við Íþróttahúsið við Varmá og þar verður partýstemning frá því að hlaupið hefst og þar til því lýkur. Þar verður hægt að hvetja keppendur áfram og njóta samverustundar með fjölskyldum og vinum. Sérstök drullubraut verður á svæðinu fyrir börn yngri en átta ára.
Er hægt að skola af sér eftir hlaupið?
Já! Það verður skolstöð á staðnum og frítt í sund fyrir þátttakendur.
Hvað kostar og hvernig fer skráning fram?
• Einstaklingsskráning: 3.500 kr. á mann.
• 3 manna hópur 7.000kr.
• 4 manna hópur 7.000kr.
• 5 manna hópur 8.500kr.
• 6 manna hópur 10.000kr.
Og svo frv. aukaeinstaklingur í hóp greiðir 1.500kr.
Afhending hlaupagagna
Hlaupagögn verða afhent í verslun Krónunnar í Mosfellsbæ föstudaginn 15. ágúst milli kl. 17:00 og 19:00. Fyrir þau sem ómögulega komast að sækja gögnin fyrirfram þá verður stöð við Varmá fyrir hlaup þar sem hægt verður að sækja gögnin. Við hvetjum alla til að sækja gögnin daginn áður til að minnka örtröðina og auðvelda ræsingu í hlaupið.
Helstu upplýsingar
• Hvar: Íþróttamiðstöðinni Varmá Mosfellsbæ.
• Dagsetning: Laugardagur 16. ágúst 2025.
• Hvenær: Kl. 10:00 - 15:00.
• Hlaupaleið: 3,5 km og inniheldur alls 21 hindrun.
• Upphaf: Við Íþróttamiðstöðina Varmá.
• Endir: Við Íþróttamiðstöðina Varmá.
Skráning og ítarlegar upplýsingar
Hér eru nokkrar myndir frá hlaupinu í fyrra.


