Soffía: Einstakt tækifæri fyrir fimleikafólk
„Við erum mjög spennt fyrir komu sýningahópsins. Hópur eins og þessi er sjaldséður úti á landi,“ segir Soffía Björg Sveinsdóttir, sem situr í stjórn fimleikadeildar Hattar á Egilsstöðum. Hópurinn kom til Egilsstaða í gær.
Meðlimir Verdensholdet hafa verið á ferðalagi um heiminn síðan í október á síðasta ári. Hópurinn kom hingað til lands fyrir viku og er nú staddur á höfuðborgarsvæðinu eftir velheppnaðar ferðir til Akraness og Selfoss. Hópurinn dvelur á Egilsstöðum fram á miðvikudag og heldur þá aftur til Reykjavíkur.
Meðlimir Verdensholdet halda sýningar á flestum stöðum þar sem hópurinn stoppar. Sýningar hafa verið á Selfossi, Akranesi og var stór sýning í Garðabæ á föstudag fyrir fullu húsi áhorfenda. Það var síðasta stóra sýning Verdensholdet á heimshornaflakkinu. Alls hafa stóru sýningarnar verið 50 talsins.
Daginn eftir sýninguna í Garðabæ um helgina hélt fimleikahópurinn norður. Hann gisti í húsnæði Skólabúða UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði. Farið var á Hvammstanga, fylgst með hestafimleikum og brugðið á leik.
Hópurinn leitar eftir því á ferð sinni að gista á heimilum fólks og kynnast með því móti landi og þjóð frá fyrstu hendi.
Soffía segir það einmitt markmiðið á Egilsstöðum.
„Við vorum reyndar aðeins með kvíða yfir því að finna ekki nógu margar fjölskyldur fyrir hópinn. En það gekk á endanum vel,“ segir hún. „Ég hef boðist til að fara með minn hóp að skoða nærumhverfið og býst við að fjölskyldurnar sem gestir okkar gista hjá geri eitthvað með þeim,“ bætir hún við.
Meðlimir sýningahópsins munu standa fyrir vinnustofum fyrir iðkendur í 3. – 4. flokki fimleikadeildar Íþróttafélagsins Hattar og stýra masterclass-vinnustofu fyrir þjálfara á mánudag.
„Þetta er alveg einstakt tækifæri fyrir bæði iðkendur og þjálfara,“ segir Soffía, en fimleikadeildin hefur ýmislegt á dagskránni fyrir meðlimi Verdensholdet annað en þjálfun og æfingar.
Á Egilsstöðum verður sýning í íþróttahúsinu þriðjudaginn 17. mars frá klukkan 17:15 – 18:00.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir sem teknar voru á föstudag á sýningu Verdensholdet í Garðabæ og á Hvammstanga.