06. júní 2025
Umhverfissjóður UMFÍ úthlutar 6,2 milljónum króna

Umhverfissjóður UMFÍ hefur úthlutað rúmum 6,2 milljónum króna til 15 verkefna á vegum aðildarfélaga sambandsaðila UMFÍ. Alls bárust 18 umsóknir í sjóðinn.
Á meðal helstu verkefnanna sem Umhverfissjóður styrkir eru gróðurróðursetning í umhverfi félagssvæðis, sjálfboðaliðadagar, fegrun íþróttasvæða, brautargerð í skíðagöngu Skíðafélags Strandamanna og margt fleira í þeim dúr.
Umhverfissjóður UMFÍ hefur þann tilgang að styrkja umhverfisverkefni félaga eða einstaklinga innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Skilyrði fyrir styrkjum er að styrkþegi sé félagi/félag í UMFÍ og verkefnið sé umhverfisverkefni.
Áherslur í úthlutun
Í samræmi við reglugerð sjóðsins leggur sjóðsstjórn áherslu á að veita styrki til umhverfisverkefna sem:
- ...tengjast yngra fólki.
- ...stuðla að auknum tengslum við náttúru landsins.
- ...fela í sér nýjungar í umhverfisverndun og nýtingu.