Ungt fólk kom saman til að ræða hvað er að virka - og hvað ekki
Um 25 ungmenni á aldrinum 15–25 ára komu saman í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær og ræddu um stöðu ungs fólks á Íslandi og með hvaða hætti þau geta lagt sitt af mörkum í mótun nýrrar ungmennastefnu stjórnvalda.
Áform um ungmennastefnuna er í umsagnarferli í Samráðsgátt:
Skoða allt um áform um ungmennastefnu
Þátttakendur á fundinum í gær komu frá fimm ungmennaráðum: Ungmennaráði UMFÍ, Ungmennaráði Bandalags íslenskra skáta, Ungmennaráði KFUM og KFUK, Ungmennaráði UNICEF á Íslandi og unglingadeild björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ. Auk þeirra mættu starfsmenn ráðanna og verkefnastýra Æskulýðsvettvangsins.
Líflegar umræður um ungmennastefnu
Kvöldið hófst á léttu hópefli þar sem þátttakendur kynntust og komu sér í gírinn fyrir kvöldið. Að því loknu hélt þingmaðurinn Guðmundur Ari stutta kveikju um Ungmennastefnu stjórnvalda, markmið hennar og næstu skref í vinnunni.
Í framhaldinu tóku við líflegar umræður og óformlegt spjall þar sem þátttakendur ræddu hvað gengur vel í málefnum ungs fólks á Íslandi – og hvað mætti betur fara.
Markmiðið var að safna hugmyndum, sjónarmiðum og ábendingum frá ungu fólki sjálfu til að tryggja að stefnan endurspegli raunverulega stöðu og þarfir þeirra.
Næstu skref eru að taka saman þær hugmyndir og ábendingar sem fram komu á fundinum. Þátttakendur fá samantektina senda í tölvupósti og fá þannig tækifæri til að bæta við fleiri hugmyndum og ræða niðurstöðurnar innan sinna ráða.
Að því loknu verða allar tillögur sendar inn í samráðsgátt stjórnvalda þar sem unnið er að mótun Ungmennastefnu.
Umsagnarfrestur um stefnuna er til 23. mars næstkomandi.
Hér má sjá nokkrar myndir frá fundinum.