Upplifði frábærar minningar aftur á Reykjum
Upplifði frábærar minningar aftur á Reykjum
„Ég hugsaði að 12 ára ég væri svo til í að sjá og upplifa þennan stað á nýjan leik og bókstaflega varð þess vegna að deila góðum minningum með öðrum sem hafa farið á Reyki,“ segir Aðalheiður Elín Ingólfsdóttir, kennari við Öldutúnsskóla í Hafnarfirði. Í nóvember í fyrra kom hún ásamt nemendum 7. bekkjar í skólanum í Skólabúðir UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði. Hún deildi upplifun sinni á skemmtilegan hátt á samfélagsmiðlinum TikTok. Þar leyfði hún áhorfendum að endurupplifa minningar sínar frá skólabúðunum.
Aðalheiður, sem flestir kalla Hædí, kom síðast í Skólabúðirnar árið 2007 sem nemandi þegar hún var sjálf á grunnskólaaldri. Nú er hún þrítug, tveggja barna móðir og finnst fátt skemmtilegra en að skapa og hanna, dunda sér við saumavélina eða að baka í eldhúsinu.
Hana minnir að á sama tíma og hún var í Skólabúðunum fyrir 18 árum hafi nemendur Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ deilt með þeim dvölinni.
„Ferðin á Reyki er skemmtilegasta minning mín úr grunnskóla. Ég man vel eftir dvölinni sem barn. Við gistum á Grund og hinir nemendurnir í Ólafshúsi. Það sem stóð mest upp úr hjá mér var tískukeppnin, það er og var víst svaka sport að mála og greiða strákunum,“ segir Hædí þegar hún rifjar upp ferðina á sínum tíma.
18 árum síðar
Hædí er í skýjunum með dvölina á Reykjum þegar hún var í 7. bekk og fannst frábært að koma aftur með eigin nemendahóp.
„Mér finnst ég ótrúlega heppin að fá að fara þangað aftur og upplifa þessa skemmtilegu daga með nemendum mínum. Þetta var „flashback“ á hverjum degi,” segir hún og bætir við að ferðin og dvölin hafi verið besta vinnuvika ársins.
Dagskráin á Reykjum er fjölbreytt og þar fengu nemendur tækifæri til þess að efla leiðtogahæfni sína og sjálfsmynd.
„Mér finnst vera svo ótrúlega mikill metnaður í þessu öllu núna og ég tala nú ekki um sundlaugarpartíið. Þarna var alvöru froðudiskó! Ég er reyndar enn þá að meðtaka að boðið er upp á hvítan sykur út á morgunkornið, alveg eins og í minningunni. Það er alveg geggjað,” segir Hædí og hlær.
„Það vakti líka upp gamlar minningar að koma aftur á Byggðasafnið, sem er alveg eins og í minningunni. Það eina sem hefur tekið breytingum er Skólabúðalagið. Ég man enn þá textabút úr gamla laginu en nýja lagið er algjör snilld og algjört heilalím. Ég segi bara: Vel gert Ingimar!“
Hædí segir nemendur sína hafa sýnt mikinn áhuga á því að heyra sögur hennar frá því hún var í Skólabúðunum fyrir næstum tuttugu árum.
„Það var ótrúlega gaman að rifja þetta upp með þeim á staðnum og bera saman hvernig upplifunin mín var sem nemandi og hvernig nánast allt er eins, nema sumt,“ segir Hædí.
Skólabúðirnar þétta nemendahópinn
Hædí segir gaga-boltaleikinn standa upp úr eftir dvölina á Reykjum. Leikurinn er spilaður á pannavelli og snýst um að slá fótbolta með höndunum í fætur annarra leikmanna fyrir neðan hné.
„Þetta er klárlega vinsælasti leikurinn þessa dagana. Börnin stefna á að fara í fjáröflun til þess að fjárfesta í velli á skólalóðinni til að spila gaga-bolta,“ segir Hædí og bendir á að leikir og fleiri viðburðir hafi þétt nemendahópinn, sem hafi komið heim bæði samheldnari og reynslunni ríkari. Dvölin hafi líka styrkt samskipti nemenda við önnur kyn og almennt bætt samskiptin í bekknum.
„Það reyndi þó aðeins á þolinmæðina á leiðinni heim þar sem ferðin endaði heldur betur skrautlega hjá okkur,“ segir hún. Veðurofsi og sterkar vindhviður undir Hafnarfjalli urðu til þess að hópurinn komst hvorki lönd né strönd og varð að bíða af sér veðrið í fjórar klukkustundir í Borgarnesi. Ekki þurfti hópurinn að hafa áhyggjur af kulda og trekki því hann fékk skjól í grunnskólanum meðan á biðinni stóð.
Sýndi þjóðinni frá upplifuninni á TikTok
Hædí sýndi og sagði frá upplifun sinni af skólabúðunum sem kennari á TikTok- reikningi sínum. Undirtektirnar voru mjög góðar.
Ástæðan fyrir því að hún gerði það var sú að hún vildi deila þeim með öðrum. En svo þótti henni líka gaman að vera kennarinn sem má taka myndir og vídeó af staðnum, þar sem nemendur mega annars ekki vera með síma.
„Það var sérstaklega gaman að fanga gamlar minningar á filmu,“ segir Hædí. Upptökurnar dreifðust víða og greinilegt að mörgum þótti gaman að sjá frá starfinu á Reykjum.
„Ég er eiginlega enn þá að átta mig á viðbrögðunum sem ég fékk, yfir 52 þúsund áhorf komin á myndböndin og enn bætist í,“ segir hún. Myndböndin eru orðin fjögur talsins og hvetur Hædí lesendur Skinfaxa til þess að kíkja á þau á TikTok-reikningi sínum undir notenda- nafninu „Hædí“.
„Ég er uppfull af gleði eftir þessa ferð og tek með mér fullt af leikjum og góð samskipti í veganesti. Ég vil einnig fá að hrósa starfsfólki skólabúðanna fyrir frábær störf og æðislegt viðmót, allir svo glaðir og kátir. Haldið áfram að vera svona frábær! Takk kærlega fyrir mig og okkur öll, ég vona svo sannarlega að ég fái að koma aftur til ykkar sem fyrst,“ segir Hædí að lokum.
Þú getur skoðað upptökur Hædíar á TikTok hér: https://www.tiktok.com/@adalheidurelin95
Þú getur lesið allt í Skinfaxa
Viðtalið er allt er í Skinfaxa, tímariti UMFÍ. Þú getur smellt á myndina hér að neðan og lesið rafræna útgáfu af blaðinu.
Þú getur líka smellt hér og fengið nýjasta tölublað Skinfaxa sent til þín í tölvupósti um leið og það kemur út. Áskriftin er ókeypis.
Smelltu hér: