Fara á efnissvæði
06. febrúar 2026

Við leitum að svæðisfulltrúa á Austurlandi

Vilt þú vinna sem svæðisfulltrúi að eflingu íþróttastarfs á Austurlandi? 

ÍSÍ og UMFÍ leita að einstaklingi með brennandi áhuga á íþróttastarfi og samskiptum til að taka þátt í að efla íþróttastarf á Austurlandi. 

Um tímabundið starf er að ræða frá mars/apríl 2026 og til næstu 8 mánaða. Möguleiki er á framtíðarstarfi í samstarfi við Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA). 

Frestur til að sækja um starfið er til miðnættis 15. febrúar næstkomandi. 

Sextán svæðisfulltrúar vinna á átta starfsstöðvum um allt land. Tveir svæðisfulltrúar eru á hverju svæði. Tveir eru á Austurlandi en einnig er teymisvinna um allt land.

Starfsfólk svæðastöðva tekur þátt í að skapa tækifæri og þróa íþróttaumhverfið, með sérstakri áherslu á fyrir börn og ungmenni. 

Starfsemi svæðastöðva byggir á teymishugsun þar sem samvinna, fagmennska og frumkvæði í sterkri liðsheild er grundvallaratriði.  

 

Svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna gerir eftirfarandi

•    Vinnur að eflingu íþróttastarfs á sínu svæði og með öðrum svæðisfulltrúum á landsvísu. 
•    Vinnur að innleiðingu á stefnu og markmiðum íþróttahreyfingarinnar.
•    Vinnur að innleiðingu á stefnu og markmiðum stjórnvalda í íþróttamálum á sínu svæði og á landsvísu.
•    Bætir almenna umgjörð í kringum íþróttastarf.

 

Menntunar- og hæfniskröfur


•    Leitað er að hæfileikaríkum einstaklingi með fjölbreytta þekkingu til að gegna ofangreindum verkefnum.
•    Reynsla og þekking af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
•    Háskólamenntun sem nýtist í starfi og samstarf við sveitarfélög er kostur.

Umsækjandi þarf að sjálfsögðu að hafa hreint sakavottorð í samræmi við ákvæði í íþróttalögum.

Ítarlegar upplýsingar og umsóknir á Alfreð:

Sækja um á Alfreð

 

Fyrirspurnir má senda í tölvupósti á andri@isi.is eða audur@umfi.is