Fara á efnissvæði
20. júní 2025

Vilja snúa aftur í sumarbúðir UMFÍ

„Sumarbúðirnar gengu rosalega vel. Við fórum í mikið af leikjum og fengum geggjað veður. Stelpurnar fengu besta 17. júní sem hugsast gat,“ segir Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður sumarbúða UMFÍ, sem fóru fram í fyrsta sinn á dögunum á Reykjum í Hrútafirði.

Sumarbúðirnar, sem voru fyrir börn fædd 2011 til 2013, voru skiptar upp eftir kynjum, drengir voru eina vikuna og stúlkur hina. 

Unnið var eftir því í sumarbúðum UMFÍ að þátttakendur fái þar tækifæri til þess að efla leiðtogahæfni sína, styrkleika og sjálfsmynd. Áhersla var á útiversu, hreyfingu, samvinnu og samveru í öllum verkefnum. Unnið var með nánasta umhverfi sumarbúðanna, í fjörunni og þeirri náttúru sem umlykur Reyki. Einnig er íþróttahús og sundlaug á svæðinu. 

Sigurður segir líf og fjör hafa verið í sumarbúðunum, farið hafi verið í mikið af leikjum, þar á meðal í spennandi fjársjóðsleit og siglt út á kajak.


„Þeim fannst öllum skemmtilegt að vera úti og leika sér,“ Sigurður segir öll börnin sem hafi tekið þátt í sumarbúðunum hafa verið í skýjunum með dvölina og vilja endurtaka leikinn á næsta ári. 

 

Allt um sumarbúðir UMFÍ

Fleiri myndir úr sumarbúðunum má sjá hér að neðan