Vinnustofa um íþróttir fatlaðra í Skagafirði

„Við erum mjög spennt og jákvæð fyrir vinnustofunni og hlökkum til að hitta drífandi einstaklinga, foreldra og fleiri í sveitarfélaginu sem brenna fyrir íþróttum fatlaðra,“ segir Halldór Lárusson, annar tveggja svæðisfulltrúa íþróttahéraðanna á Norðurlandi vestra.
Hinn svæðisfulltrúinn er Sigríður Inga Viggósdóttir og er hún á myndinni með Halldóri þegar þau ásamt fleiri svæðisfulltrúum kynntu sér starfa íþróttasambands fatlaðra í Danmörku seint á síðasta ári.
Svæðisstöðvar íþróttahéraðanna, Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS) og Íþróttasamband fatlaðra standa fyrir vinnustofu mánudaginn 2. júní fyrir forsjáraðila, íþróttaþjálfara, starfsfólk skóla og áhugafólk um íþróttir. Þar verður rætt hvernig hægt er að koma af stað skipulögðum æfingum fyrir fatlaða og þá sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi. Mjög fjölbreytt framboð er af íþróttum í sveitarfélaginu en hins vegar er hægt að gera betur fyrir fatlaða einstaklinga.
Halldór segist vonast eftir góðum undirtektum fyrir vinnustofunni í Skagafirði. Sérstaklega vonast hann til að sjá sem flesta foreldra mæta til þess að fá sem besta mynd á raunverulegan íþróttaáhuga á svæðinu. Hann telur einnig mikilvægt að þeir mæti sem nú þegar starfa með fötluðum svo þeir geti deilt með sér af sinni reynslu og þekkingu.
Þetta er önnur vinnustofan af þessum meiði sem svæðissfulltrúar íþróttahéraðanna standa fyrir. Sú fyrsta var haldin í Reykjanesbæ í mars.
Á Norðurlandi vestra stendur einnig til að halda vinnustofur á Blönduósi og Hvammstanga.
Fundurinn verður í Húsi frítímans 2. júní og hefst klukkan 17:00.
Ítarlegri upplýsingar um vinnustofuna
Staðsetning vinnustofu: Hús frítímans, Sæmundargötu 7
Dagsetning: 2. júní 2025
Tímasetning: Kl. 17:00 – 19:00
Fyrir hverja: Alla þá sem hafa áhuga á því að efla íþróttastarf fyrir fatlaða og þá sem finna sig ekki í almennu íþróttastarfi.
Dagskrá:
Kl. 17:00 – Setning vinnustofu
Kl. 17:05 – Valdimar, Allir með
Kl. 17:20 – Annika, Júdódeild Tindastóls
Kl. 17:35 - Erindi frá foreldri
Kl. 17:50 - Anna Karolína, Íþróttasamband Fatlaðra
Kl. 18:05 - Vinnuhópar og umræður
Kl. 18:50 – Samantekt
*Athugið dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.
SKRÁNING - Vinsamlegast skráið ykkur hér https://forms.office.com/e/GARewKxVxE
Vinnustofan er liður í verkefninu Allir með, sem er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra). Verkefnið er þriggja ára verkefni sem er liður í að ná markmiðum 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar eru skýr ákvæði um viðeigandi aðlögun allra í íslensku samfélagi.
Verkefnið er styrkt af Félags- og vinnumálaráðuneytinu, Heilbrigðisráðuneytinu og Mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Íþróttahreyfingin sér um framkvæmd verkefnisins sem verður unnið á tímabilinu 2023 – 2025.
Markmið:
- Að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþrótthreyfinguna.
- Að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nær umhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir – með viðeigandi aðlögun.
- Að allir skulu eiga kost á að öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og verða sér úti um leikni til að þróast í öryggi og góðum félagsskap.
- Verkefnið fór af stað í byrjun árs 2023 og var Valdimar Gunnarsson ráðinn verkefnisstjóri og hefur hann aðsetur á skrifstofu ÍF.
Hér er hægt að skoða heimasíðu Allir með
Hér er hægt að skoða heimasíðu ÍF Íþróttasamband fatlaðra