Fara á efnissvæði

UMFÍ

Viðburðir

Viðburðir á vegum UMFÍ

UMFÍ stendur fyrir fjölbreyttum viðburðum, svo sem nýjum verkefnum eða íþróttagreinum sem hvetja til aukinnar vitundar um bætta lýðheilsu. 

Unglingalandsmót

Unglingalandsmót UMFÍ er íþróttahátíð fyrir alla fjölskylduna sem haldin hefur verið frá árinu 1992. Á Unglingalandsmóti UMFÍ keppa börn og ungmenni frá 11 – 18 ára aldri í fjölbreyttum íþróttagreinum á daginn og fara með fjölskyldu og vinum á tónleika á kvöldin alla verslunarmannahelgina. 

Lesa meira
ULM

Landsmót UMFÍ 50+

Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og kynningu á ýmis konar hreyfingu. 

Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa hvorki að vera skráðir í íþrótta- né ungmennafélag. Allir geta tekið þátt og á sínum forsendum. 

Lesa meira

Drulluhlaup

Drulluhlaup UMFÍ og Krónunnar er drulluskemmtilegt hlaup fyrir fjölskylduna, vinahópa, saumaklúbba og vini sem vinna saman að því að komast í mark í skítugasta hlaupi ársins. Hlaupið fer fram laugardaginn 16. ágúst í Mosfellsbæ. 

Drulluhlaup

Ungt fólk og lýðræði

Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði hefur verið haldin árlega frá árinu 2009. Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Ungmennaráð UMFÍ skipuleggur og stendur fyrir ráðstefnunni. Þar er lögð áhersla á að styrkja ungt fólk til að taka upplýstar ákvarðanir um eigið líf og lífsstíl. 

Lesa meira