Fara á efnissvæði

Keppnisgreinar

Glíma

Aldurs- og kynjaflokkar

  • 11 - 12 ára strákar
  • 13 - 14 ára strákar
  • 15 - 16 ára strákar
  • 17 - 18 ára strákar
  • 11 - 12 ára stelpur
  • 13 - 14 ára stelpur
  • 15 - 16 ára stelpur
  • 17 - 18 ára stelpur

 

Keppnisfyrirkomulag / reglur

Reglur og upplýsingar fyrir foreldra:
Glímubelti verða á staðnum. 
Keppendur verða að vera á sokkunum.
  • Keppendur þurfa að heilsast fyrir og eftir viðureign.
  • Glíma hefst alltaf með stíganda, en þá er hægri fóturinn fyrir framan og farið er réttsælis. 
  • Keppni hefst þegar dómari flautar og stoppar þegar dómari flautar.
  • Mikilvægt er að vera beinn í baki (ekki bola) og ekki detta ofan á andstæðinginn (níð).
  • Keppendur hafa 90 sekúndur til að leggja andstæðinginn, annars er jafnglími. 
  • Hafa þarf í huga að í glímu er andstæðingi ekki kastað í jörðina heldur eru þeir lagðir með glímubragði.
  • Hálft stig er gefið fyrir jafnglími og eitt stig fyrir sigur. 
  • Keppandi hefur tapað ef líkamspartur fyrir ofan hné og ofan olnboga snertir jörðina eða báðar hendur snerta jörðina fyrir aftan bak.

Keppt er eftir reglum Glímusambands Íslands.