Almennar upplýsingar
Fimmtudagur 31. júlí
Tímasetning: 16:00 - 21:00.
Staðsetning: Ekkjufellsvöllur
Rástímar og úrslit verða birt hér.
Verðlaunaafhending verður auglýst síðar.
Opin, ókeypis pútt og vippkeppni fyrir alla fjölskylduna fer fram á fimmtudeginum kl. 14:30.
Aldurs- og kynjaflokkar
- 11 - 13 ára piltar (48). 9 holur.
- 14 - 15 ára piltar(53). 18 holur.
- 16 - 18 ára piltar(53). 18 holur.
- 11 - 13 ára stúlkur (48). 9 holur.
- 14 - 15 ára stúlkur (48). 18 holur.
- 16 - 18 ára stúlkur (48). 18 holur.
Keppnisfyrirkomulag
- 11 - 13 ára piltar, punktakeppni með forgjöf
- 14 - 15 ára piltar, punktakeppni með forgjöf
- 16 - 18 ára piltar, höggleikur án forgjafar
- 11 - 13 ára stelpur, punktakeppni með forgjöf
- 14 - 15 ára stelpur, punktakeppni með forgjöf
- 16 - 18 ára stelpur, höggleikur án forgjafar
Reglur
Mæting er í golfskálann a.m.k. hálftíma fyrir auglýstan rástíma (sem ætti að koma á netið um 21:00 kvöldið fyrir keppni.
Ef keppendur eru jafnir í verðlaunasæti þá yrði 1. holan leikin aftur í bráðabana. Þar til úrslit ráðast.
Almennir keppnisskilmálar GSÍ gilda á mótinu.
Flokkar 14 - 15 ára og 13 ára og yngri
Kylfuberar eru heimilir, sbr. 8. lið almennra keppnisskilmála GSÍ og golfreglu 6-4.
Kylfuberi má einungis bera/draga útbúnað leikmanns og veita honum ráð samkvæmt golfreglum.
Önnur afskipti algjörlega óheimil.
Kylfuberi skal aldrei hafa orð fyrir keppanda og skal halda öllum samskiptum við aðra keppendur í algjöru lágmarki.
Kylfuberi og leikmaður hans geta að sjálfsögðu ráðfært sig hvor við annan um einstök atvik í ráshópnum á hófstilltan og lítið áberandi hátt, en það er ávallt kylfingur sem tjáir sig við aðra keppendur.
Höfum það hugfast að golfleikur krefst mikillar einbeitingar og að minnsta áreiti getur komið keppanda úr jafnvægi.
Brot á framangreindu geta leitt til brottvikningar kylfubera eftir aðvörun dómar.
Brot á þessum reglum eru víti.
Úrslit
Úrslit birtast hér.

